Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Side 52
52
ÞORLEIFUR JÓNSSON
Eggert t. a. m. í Jöfraskinnu (draumur Vanlanda) og Vatnsdælu
(draumur Þorkels silfra).
Að endingu fer Eggert nokkrum almennum orðum um trúarbrögð
fornmanna (§§ 281-301): Þó að hann hafi að vísu sett efnið fram á
kerfisbundinn hátt, sé trúkerfi fornmanna fremur ruglingslegt - og
verði lesaranum það íljótlega ljóst, ef hann leiti til frumheimildanna.
Hann bendir einnig á, að margir hafi á þessum tíma verið lausir við
fordóma og komið fram af skynsemi í þessum efnum (haft n. k. „nátt-
úrutrú“ eða skynsemistrú). Svo hafi verið með Grikkjum og Rómverj-
um - og reyndar megi finna margar hliðstæður með norrænni trú
annars vegar og trúarbrögðum Grikkja, Rómverja og Egypta hins
vegar. E. t. v. mislíki einhverjum, að efnið sé sett fram sem saga- og
sakni þess, að ekki sé sýnt fram á galla og veikleika heiðins siðar. En í
raun sé ekki þörf á slíkum skýringum, enda megi öllum ljóst vera, hvar
villur heiðins siðar liggi. Hins vegar geti enginn skilið sögu fornmanna,
nema hann þekki trú þeirra.
Hér hefur verið stiklað á stóru um efni ritsins, en ekki er nú kostur á
að gera á því fræðilega úttekt eða bera það saman við hliðstæð rit.
Leggja skal áherzlu á, að verkið er unnið sem vísindaritgerð. Aðferð
Eggerts er að láta frumheimildirnar tala sem mest, enda vitnar hann af
mikilli þekkingu í nokkra tugi íslenzkra fornrita, og hann gerir sér far
um að setja efnið fram kerfisbundið og á fordómalausan hátt. Vitan-
lega fer þó ekki hjá því, að afstaða hans og skoðanir komi fram í ýmsum
myndum — svo sem í því, hvernig hann flokkar efnið og fjallar um það
og í athugasemdum. Eins og jafnan vill vera í vísindum og fræði-
mennsku, hlýtur margt, sem í þessu riti stendur, að teljast vafasöm
fræði eftir meira en tvö hundruð ár. En það breytir því ekki, að ritið er
merk heimild um höfund sinn og vísindastarf á upplýsingaröld.
1 Handritið hefur fengið safnmerkið Lbs. 4840 4to. Á titilsíðu stendur: Populorum Aqvilonarium
/ THEOLOGIÆ GENTILIS/Stricté Sumtæ/ HISTORIA/ Sive De/ NATURA DEORUM
/ Et In Specie / GENIORUM / Ex Antiqvissimis Islandorum Monu- / -mentis conscripta,
Notisqor Criticis & / Philologicis illustrata. / Per / Egerhardum Olavium, Isl. / Hafniae/ Anno
Domini. M. D. C. C. L. I. '
2 Neðst á titilsíðu stendur: Ex librisG. I. Thorkelini 1812.-Gegnt titilsíðu stendur: Illustrissimi
/ Vice Comitis Strangfordiæ / Bibliothecæ / d. d. d. / Grimus Johannis Thorkelin. Eqves.
3 „Forspjall“ annars hluta kom útí ritgerðarformi sumarið 1751, þ. e. eftiraðþettarit haíði verði
samið, en var að líkindum tilbúið ári áður.