Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Síða 92
92
LANDSBÓKASAFNIÐ 1978
afhent við hátíðlega athöfn í Listasafni íslands mánudaginn 11. sep-
tember 1978. Annemarie Lorentzen, ambassador Norðmanna, afhenti
gjöfina og flutti ávarp, sem birt er framar í þessu hefti. Viðstödd
athöfnina voru auk hennar af hálfu Norðmanna listakonan Synnpve
Anker Aurdal, er óf teppið, eiginmaður hennar Ludvig Eikás listmál-
ari, dr. Harald L. Tveterás fyrrum ríkisbókavörður Norðmanna og frú
Bertakona hans. Dr.Tveterásfluttisíðarsamadagopinberanfyrirlest-
ur í boði Háskóla Islands, og nefndist hann Ibsenforskerne og Henrik
Ibsen. En á árinu voru liðin 150 ár frá fæðingu skáldsins. Fyrirlestur
þessi er birtur framar í þessu hefti í þýðingu Agnars Þórðarsonar
bókavarðar.
Teppið var haft til sýnis í Listasafni Islands um tveggja mánaða
skeið, en var síðan flutt í hátíðarsal Háskóla Islands, þar sem það mun
hanga uppi, unz hægt verður að koma því fyrir á sínum stað í Þjóð-
arbókhlöðu.
Hér verður nú gerð dálítil grein fyrir tildrögum gjafarinnar og
teppinu sjálfu.
Harald L. Tveterás, forstöðumaður Háskólabókasafnsins í Osló og
síðar ríkisbókavörður Norðmanna, átti á sínum tíma hugmyndina að
því, að Norðmenn létu vefa teppi, er gefið yrði hingað til lands í tilefni
11 alda afmælis Islandsbyggðar. Hann kom til Reykjavíkur tvisvar,
1969 og 1970, sem annar tveggja ráðunauta á vegum UNESCO vegna
undirbúnings byggingar Þjóðarbókhlöðu, og þar sem hún skyldi reist
til að minnast þessa afmælis, óskuðu gefendur þess, að teppið fengi,
þegar þar að kæmi, samastað í hinni nýju bókhlöðu.
Listvefaranum frú Synnpve Anker Aurdal var síðan falið að vefa
teppið, og kom hún hingað til lands vorið 1974 í kynnisför í boði
byggingarnefndar Þjóðarbókhlöðu. Listakonan lauk við teppið 1977,
og var það sýnt 1978, fyrst í Ríkislistasafninu í Osló í febrúar og fram í
marz, þá í Þrándheimi og loks í Bryggjusafninu (Bryggens Museum) í
Björgvin 12. maí- 18. júní, en seinasta sýningin var raunar jafnframt
yfirlitssýning á verkum hennar.
Sýningar þessar vöktu mikla athygli, og sótti þær fjöldi manns. I
vandaðri sýningarskrá, er Bryggens Museum gafút í maí, segir svo m.
a. um íslandsteppið, sem listakonan sjálf kallar „Rommet og ordene“
(Orðin og víðáttan): ,,I meistarverki Synnpve Anker Aurdal - hinni
frægu þjóðargjöf, sem tengd er 11 alda afmæli Islandsbyggðar, fyllir
hún enn heilan vegg og notar til þess hið tvívíða, hornrétta form. Vér
skynjum þó víðáttuna mjög glöggt í línum verksins, og sé komið nær,