Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1942, Blaðsíða 9

Frjáls verslun - 01.09.1942, Blaðsíða 9
af stað. Kvöldið áður gaf skipstjórinn okkur aura til að fara á „Karneval“ og gerði það til að hafa okkur góða. Við vorum óánægðir yfir að fara og hefðum betur ráðið, eins og síðar kom í ljós. Ég minnist þess að skammt frá okk- ur lá rússnesk skonnorta, sem líka var lek og neituðu skipsmenn að halda á haf út og sneru við rétt fyrir utan höfnina. En við héldum á- fram og hrepptum ofviðri í Biskayaflóa. Var veðrið með þeim ósköpum að við bundum stýr- ið fast í 14 sólarhringa og lágum til drifs. Það má nærri geta að við urðum að taka til við dælurnar. Skammt frá okkur sáum við allstórt gufuskip farast, en við gátum ekkert gert til bjargar. Loks komumst við til Plymouth í Eng- landi og þar var skipið „fóðrað“, sem kallað var. Var það gert með þeim hætti að brytjaður hálmur var látinn í poka en gjörð í pokaopið, sem hélt því opnu. Pokinn var síðan dreginn undir skipið og saugzt hálmurinn þá upp í rif- urnar á byrðingnum. Auðvitað var þessi „fóðr- un“ engin viðgerð, enda var skipið strax orðið hriplekt, er við komum úr höfn. Er út í Norður- sjóinn kom á leið til Kalmar lentum við í vest- angarði og stórhríð og var ekki viðlit að við gætum komizt fyrir Skaga. Skipstjórinn var mikið drukkinn að vanda og Þjóðverjarnir urðu veikir og fóru í koju. Var svo haldið skipsráð og stakk ég upp á því að snúa aftur við til Englands og var horfið að því ráði. Lensuðum við alla leið til Grimsby og var farmurinn þar losaður allur úr skipinu en það sett í dokk. — Koparhúð var utan á byrðingnum og var hún rifin af og borgaðist með því viðgerðin. Um miðjan maí lögðum við aftur af stað til Kalm- ar og komumst þangað klaklaust. Ég borgaði skipstjóranum, þegar þangað kom 70 ki'. til að losna af skipinu. Afdrif Elise Hoy urðu þau, að skipið var dæmt ósjófært og komst aldrei úr Kalmar-höfn. Ég var allshugar feginn að losna af þessari gömlu manndrápsfleytu og fór til Danmerkur aftur eftir 13 mánaða útivist. Þar fékk ég skipsrúm sem 3 stýrimaður á skipinu Patria, sem Köbenhavnerselskabet átti. Um sumarið 1904 og fram á vor 1905 sigld- um við frá Lulá í Svíþjóð til Rotterdam 1 Hol- landi og Emden í Þýzkalandi með járngrýti. Eftir 3ja mánaða veru á Patria fór ég yfir í skipið Gallia, sem Kjöbenhavnerselskabet átti einnig og var það skip þá statt í Amsterdam. Fórum við þaðan til Hamborgar og tókum farm en sigldum síðan til Wilmington á austurströnd Ameríku og þaðan til Port Limmon, en sigld- um svo allan veturinn milli New Yoi’k og Cuba með sykur. Um sumarið hurfum við heim og vorum í siglingum á Eystrasalti. Um veturinn 1905 kom einkennilegt atvik fyrir okkur. Við áttum þá tvenn jól, en það vildi svo til að við fórum frá Kaupmannahöfn rétt eftir jólin áleiðis til Libau í Eystrasalts- löndunum, en þar voru jólin haldin á rússneska vísu 13 dögum seinna en í Danmörku eða í janú- ar 1906. Meðan við vorum í höfn fórum við til að hlusta á guðsþjónustu í skandinavisku kirkj- unni í Libau, en þegar messan stóð sem hæzt heyrðum við skot og ólæti. Óeirðir höfðu þá brotist út í borginni og voru þær all-magnaðar. Ekki máttum við fara út úr kirkjunni fyrr en daginn eftir og urðum að dúsa þar alla nóttina. Þegar við komum niður að skipinu um morgun- inn lágu tvö lík á bryggjunni og þegar við héld- um úr höfn dundi skothríð á skipinu og munu byltingamennirnir ekki hafa viljað að skip með matvæli innanborðs færi úr höfn. Miðuðu þeir á brúna og hafa auðsjáanlega ætlað að skjóta skipstjóra og hafnsögumann. Síðan fórum við enn á ný til Ameríku og sigldum milli Mexiko og New Orleans. Flutt- um við manillagras frá Mexiko til New Orleans, en fluttum til baka kýr, svín og hænsni og alls- konar annað dót. Sá var galli á þessum ferðum, að í Mexiko var moskito-fluga, sem ber með sér gulu-veiki, og urðum við að vera í sóttkví 24 klst. áður en við fórum frá Mexiko og síðan aftur í 48 stundir í mynni Missisippi áður en við gátum komizt í liöfn í New Orleans. Ann- ars hefi ég aldrei lifað skemmtilegri siglingu en þessa. Missisippi er, eins og kunnugt er, eitt mesta stórfljót heimsins. Það er kolmórautt og ískalt, líkt og Jökulsá á Fjöllum, enda kemur fljótið undan háum snæviþöktum fjöllum. Meðfram ánni var á þessum tíma hálfgerður frumskóg- ur víðasthvar og mátti sjá þar stórar hjarðir villisvína, sem leituðu til fljótsins til að fá sér að drekka. Svo voru með nokkru millibili þorp og stórir búgarðar. Ekki er hægt að hrósa skipsmönnum á Gallia í þessari ferð. Yfirleitt var ekki hægt að fá nema úrkastsmenn til að fara í svo langar ferðir, enda var mannvalið slæmt. í Mexiko fengu skipsmenn vont vín til drykkjar og mistu stundum vitið í ölæði, og varð sérstaklega eitt sinn út af því hættulegur árekstur. Sumarið 1906 vorum við svo enn í ferðum á Eystrasalti. Við fluttum frá Riga til Hollands 25 álna löng tré, sem notuð voru í húsagrunna í Hollandi, en þar er jörð víða svo gljúp, að reka verður slík tré niður áður en nógu trygg FRJÁLS VERZLUN 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.