Frjáls verslun - 01.12.1951, Síða 1
13. ÁRG. 11.—12. HEFTI — 1951
íslendingar eru örlátir menn. Sumir segjj að gjafmildi þeirra nálgist eyðslusemi.
Skal enginn dómur á það lagður, en trúlegt þykir, að ofrausn í gjöfum muni þó
frekar vera einn af fylgihnöttum veltiáran.ia og muni breytt árferði fœra gjafir til
meðalhófs. Hinu verður ekki neitað, að ör ceti er aða’smark og margir munu þeir
vera brestimir í fari þjóðarinnar, sem fremur mœtti berja í, en hjálpfýsi við bág-
stadda og gjafagleði hennar.
lólagjafir er gamall og góður siður i landinu. Áður fyrr gáfu menn flýkur og muni,
sem gerðir voru á heimilunum. Með breyttum atvinnuháttum hefur og orðið breyting
á þessu sviði. Heimilisiðnaðurinn skipar nú ekki lengur sinn fyrri sess og meirihluti
jólagjafa mun nú unnin utanheimila, keyptur fullgerður í verzlunum. Það hefur því
orðið hluskipti verzlunarstéttarinnar að verða miðlari milli hinna ótal gefenda, sem
gleðja vilja hverja aðra á þessari mestu hátíð ársins. Til eru þeir, sem leggja henni
þetta sem annað til lasts og bera verzlunarstéttinni á brýn að vilja breyta jólunum í
„mangarahátíð". Þetta er ómaklegur áburður, því að verzlunarstéttin rœður engu um
það, hvort gjafir eru gefnar eða ekki; hennar hlutverk takmarkast við að hafa vörur á
boðstólum, sem neytendum er i sjálfsvald sett að kaupa eða kaupa ekki, gefa eða
neyta sjálfir.
Af nefndum ástœðum eru vikurnar fyrir jó;in oftast mikill annatími fyrir verzlunar-
fólkið, vökunœtur við gluggasýningar, stöðugir snúningar, oft í kuldatíð, fyrir af-
greiðsluiólkið og þungar heimsendingar fyrir smávaxna sendisveina. Þau hafa því
verið mörg jólin, einkum áður en vinnutíminn var takmarkaður, sem verzlunarfólkið
kom svo lúið heim á aðfangadagskvöld, að það fór beint í rúmið. Á þessu er nú orðin
breyting til bóta og á Verzlunarmannafélag Reykjavikur sinn þátt í því.
Verzlunarfólki fellur yfirleitt illa að selja lélegar vörur, en heíur gleði af að sýna
og selja góðar og fallegar vörur. Á undaníörnum árum, árum vöruskortsins, hefur það
því miður oft verið hlutskipti þess að þurfa að aígreiða lélegar vörur, skipta takmörk-
uðum vörum og neita um beinar nauðsynjar. Um þessi jól hafa frjálsari verzlunar-
hcettir fcert landsmönnum betri vörur og meira vöruval, þannig að nú hafa verzlanirn-
ar á boðstólum glœsilegt val af vörum frá hinum fjarlœgustu löndum. Verzlunaríólkið
gengur glaðara að starfi sínu um þessar mundir, en það hefur gert fyrir mörg undan-
farin jól, og viðskiptavinimir verða vafalaust áncegðari með sín kaup, þótt þau kunni
að verða eitthvað smœrri en áður.
Frjáls verzlun vill ljúka þessu jólaspjalli með því að ó ska öllum lesendum sínum
gleðilegra jóla og verzlunarfólkinu góðrar hvíldar um jólin.