Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1951, Qupperneq 22

Frjáls verslun - 01.12.1951, Qupperneq 22
Jólin nálgast, og Reykjavík er að fá á sig æ meiri jólasvip, sem náði hámarki sunnudaginn 9. des. s.l., hvað snertir gluggaskreytingar verzlana borgarinnar. Mikil hugsun og vinna liggur á bak við allar þessar jólaskreytingar, og að sjálfsögðu kosta þær mikla peninga fyrir þau fyrirtæki, sem lagt hafa út í það að skreyta sýningarglugga og verzlanir sínar. Allir þeir, sem hér eiga hlut að máli, bæði kaupmenn og verzlunarmenn, eiga þakkir skyldar fyrir að hafa gert Reykjavík jólalegri en hún hefur nokkum tíma verið áður, þrátt fyrir að bæði greni og jólatré vant- aði. Nú langar okkur, lesandi góður, að taka þig með í gönguferð um borgina fyrrgreint sunnudagskvöld og skoða verzlanir og sýningarglugga þeirra. Við byrjum ferðalag okkar frá Herkastalanum við Aðalstræti og stefnum á jólabjölluna við enda göt- unnar hjá raftækjaverzluninni Rafal. Báðum megin götunnar eru verzlanir, allar eru þær með jólaskreyt- ingar, þó engar það mikið, að þær skeri sig úr. Við stöldrum þó örlítið við hjá Silla & Valda, þar sem bæði gluggarnir og verzlunin eru mjög hreinlegir og jólalegir. Við höldum áfram og bevgjum inn í Aust- urstræti. Þar eru verzlanir á báðar hliðar, en þrátt fyrir að allar þessar verzlanir séu skreyttar, verðum við ekki fyrir neinni sérstakri hrifningu, fyrr en við komum að blómaverzluninni Flóru.. f glugga verzlun- Osram-skipið prýðir Véla- off raftækjavcrzlunina í Bankastræti arinnar er mjög haganlega gerð eftirlíking af neð- ansjávargróðri, með þara og þönglum, karfa og kola, og öðrum sjávardýrum, og vekur þetta allt mikla eft- irtekt vegfarenda. Þó finnst okkur, að Flóra hafi oft áður verið jólalegri. Við staðnæmumst næst hjá verzlun Ragnars H. Blöndals h.f. Þar eru stórir og fallegir gluggar, eins og sjá má á meðf. mynd. Þeir eru mjög vel skreyttir, þó eru þeir ekki alveg galla- lausir frá faglegu sjónarmiði, og kemur það ef til vill af því, að gluggarnir eru opnir og skreyting inn- anhúss, sem er mjög fagurlega gerð, truflar glugga- sýninguna. Hjá Jacobsen er verzlunin öll mjög vel skreytt, en gluggasýning er þar lítil, sökum þess að að þar eru baklausir gluggar. Áfram er haldið og litast um á báða vegu. Alls slaðar eru gluggaskreytingar, en engar áberandi fyrr en hjá Ilaraldarbúð h.f. Það má segja, að verzlunin séu margir sýningargluggar. Voru þeir allir með sama „mótivi“ í bakgrunni, eins og sjá má á mynd þeirri, sem fylgir grein þessari. Allir eru gluggarnir vel- byggðir upp, en þó ekki allir jafn fallegir. Hjá verzlun Ingibjargar Johnson í Lækjargötu voru þokkalegir gluggar og verzlunin sjálf snyrtilega skreytt. Kinn hinna sinekkleifu .iólaslupsft Hftraidarhiiðnr h.f. Vignlr tók myndirnar af verzlunargluggunum.

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.