Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1951, Qupperneq 29

Frjáls verslun - 01.12.1951, Qupperneq 29
Sigurgísli Gufinason skrijstojumaSur varð sex- tugur 7. des s.l. Hann er Árnesingur að ætterni, fæddur að Kröggólfsstöð- um í Olfusi. Sigurgísli starfaði um margra ára skeið hjá matvöruverzlun Jes Zimsen hér í bæ. Kann- ast margir við manninn þaðan, því að mikið orð fór af honum sem hinu mesta lipurmenni í s'tarfi sínu. Þá starfaði Sigurgísli um 30 ára skeið í Slökkvi- liði Reykjavíkur og gekk þar ótrauður til starfs eins og annars staðar, enda vann hann sér óskipt traust yfirmanna sinna. Undanfarin ár hefur hann unnið við skrifstofustörf hjá Vatns- og hitaveitu Reykja- víkur. Ýmsum félagsmálum hefur hann fórnað tómstund- um sínum um dagana, og hefur V. R. ekki farið var- hluta af þeim. Hann átti sæti í stjórn V H. í mórg ár. og á 60 ára afmæli félagsins í jan. s.l. var hann kjör- inn heiðursfélagi þess fyrir velunnin og óeigingjörn störf í þágu stéttarinnar. Sigurgísli er maður léttur í lund, síkátur og dreng- ur góður. Árnar blaðið og sljórn V. R. þessum síunga heið- ursfélaga sínum allra heilla með afmælið. Jón Lojtsson forstjóri átti sextugsafmæli 11. des. s. 1. Hann er fæddur að Mið- hóli í Sléttuhlíð í Skaga- firði, sonur hjónanna Lofts bónda Jónssonar og Ingi- bjargar Þóroddsd. konu hans. Jón nam í Háskóla veturna 1910 og 1911. en vann sumarmánuðina ýmis jarðyrkjustörf. Að námi loknu stundaði Jón næstu árin jarðyrkjustörf og tré- smíði, en þá iðn hafði hann lært af föður sínum. Á ár- unum 1922—23 dvaldi hann við verzlunarnám í Dan- mörku og Þýzkalandi. í Þýzkalandi kynntist hann því, hvernig vikur var notaður í stóruni stíl til húsbygg- inga. Fékk hann strax áhuga á málinu, sendi út íslenzk sýnishorn og jafnvel heila skipsfarma. Árið 1937 stofn- setti harin Vikurfélagið h. f., sem þegar er landsþekkt fyrir framleiðslu sína á bj'ggingarvörum úr vikri. Frá árinu 1923 Iiefur Jón rekið umfangsmikið verzl- unarfyrirtæki hér í hæ, er einkum hefur annazt inn- flutning á bvggingarvörum og timbri, svo og bifreið- um og varahlutum til þeirra. Jón hefur gefið sér tíma til að sinna ýinsum félags- og framfaramálum þessa bæjarfélags og á sæti í stjórn margra félaga. Er hann áhugasamur mjög um öll þau mál, sem hann tekur sér fyrir hendur. „Frjáls verzlun“ árnar honum allra heilla með af- mælið. FRJÁLS VERZLUN 181

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.