Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1955, Blaðsíða 1

Frjáls verslun - 01.12.1955, Blaðsíða 1
17. ÁRG. 9.—12. HEFTI — 1955 ★ ** + ★**★**★** *************** Ekki fara alltaf saman stærð og stórhugur, og engin nauðsyn, að smæð fylgi kotungsháttur í orði eða æði. íslendingar fá að vísu litlu ráðið í þeirri glímu, er aflsmunar er látið gæta, enda eru leikreglur íslenzkrar þjóðaríþróttar ekki byggðar á níði né bolabrögðum, heldur á drengskap og stílhreinu við- bragði. Á hinn veginn ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu, að fámenn þjóð geti verið liðgeng á alþjóðlegu taflborði mannvits og hugsjóna. Fyrir 2500 árum skópu smáþjóðir heimsmenninguna. Aþeningar voru ámóta fjölmennir og íslendingar eru nú, er þeir hjuggu í marmara þær súlur, er vestræn menning stendur enn föstum fótum á. ítölsku borgríkin, er endur- vöktu klassíska menningu og mótuðu list orðs og lita um aldir, voru álíka fjölmenn og smáíbúðahverfi stórborga meginlandsins eru í dag. Það var heldur ekki fjölbýlt á Islandi, þegar eyjan í Atlantshafinu varð fæðingarstaður þeirra bókmennta, sem fengið hafa varanlegan sess í sögu mannkynsins og varpað hafa ljóma norrænnar menningar suður um yztu höf og austur í svörtustu skóga. Enn á ísland verk að vinna, trygg sinni arfleifð, að flytja mannkyninu boðskap fegurðar og frelsis. ísland var byggt af því að íslendingar kusu frelsið; frelsið notuðu þeir til þess að semja fagrar bókmenntir, sem allar eru innblásinn óður um hinn frjálsa mann. í hjarta sínu á hver Iislendingur að rækta trúna á frelsið og tilfinningu fegurðarinnar, þannig að vér verðum, hver og einn, hvar sem við förum, virkisverðir frjálsrar hugsunar. Fulltrúar íslands á alþjóðastefnum eiga jafnan að vera merkisberar frelsisins og í ræðu og riti að veita hinum frjálsa málstað brautargengi. Það hefur verið sagt, að þeir, sem vilja lýsa, verði að loga. íslendingar eiga að láta kyndil frelsisins loga. Fyrir tæpum tvö þúsund árum var tendrað ljós suður í löndxnn, sem flutt hefur mannkyninu birtu og yl, frelsi og fagurt mannlíf, Látum þetta ljós endurspeglast hér á hjami nyrstu byggða og varpa iðandi ljóma norðurljósa frelsisins yíir svartnætti þjáðra þjóða, sem enn búa við fjötur og forlög hörð. Megi jólin verða öllum þjóðum hátíð ljóss og frelsis.

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.