Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1955, Blaðsíða 33

Frjáls verslun - 01.12.1955, Blaðsíða 33
inn fáanlegur, en % tapaðir, og varð reyndin víst ekki langt frá þessu. Benedikt Gröndal getur þess,1) að úr auði Þorsteins hafi ekkert orðið' „því að erfingjarnir voru engir, sem gætu haldið reglu á“. — Einn af skuldunautum Þorsteins var Bjarni rektor Jónsson, og samdi hann um afborganir af skuld sinni. — Á skiptafundi í október 18(53 er þess getið, að rektor hafi þá greitt 50 rd. afborgun af skuld sinni, og samþykkti fundurinn að þessi upphæð skyldi ganga til Önnu, laundóttur Þor- steins, — henni til framfæris, en þetta var víst það eina, sem ættingjarnir eða afkomendur fengu. Hannes St. Johnsen, kaupmaður. Þá skal minnzt þess manns, sem tvímæla- laust var merkastur í kaupmannastétt lleykja- víkur á 19. öld. Auk þess, sem hann stjórnaði og rak verzlun þeirra lengst, eð'a nærri 50 ár, var hann einnig mikill áhrifamaður í bæjarmál- um Reykjavíkur og var lengi í bæjarstjórn. Hannes kaupmaður var mikilla ætta og göf- ugra. Hann var einkasonur Steingríms biskups Jónssonar og frúar hans, Valgerðar Jónsdótt- ur, sem áður hafði verið gift dr. Hannesi Finns- syni. — Ha.nnes kaupmaður var fæddur að Lambhúsum á Álftanesi 22. maí 1809, en þai bjó faðir hans, sem þá var enn skólameistari í Bessastaðaskóla. Honum var veitt hið bezta uppeldi, sem völ var á hér á landi og efnaðir foreldrar gátu veitt einkasyni sínum. Þegar hann hafði aldur til og þroska, var hann settur til mennta og Jionum ætlað að verða enrbættis- maður, en örl'ögin höguðu því svo, að hann varð kaupmaður. Ekki var liann samt settur í Bessastaðaskóla, enda var faðir lians þá orðinn biskup yfir Is- landi og fluttur að biskupssetrmu i Laugarnesi, og þar óJst Hannes kaupmaður að mestu upp. Biskupinn lét þennan einkason sinn nema skóla- lærdóm hjá þeim kennaranum, sem lærðastur og beztur kennari þótti hér á landi, en það var Árni stiftprófastur Helgason í Görð’um, og úr hans „nafnkunna heimaskóla“ útskrifaðist Hannes 21 árs gamall, vorið 1830. — Bislaips- sonurinn sigldi svo um sumarið til Hafnar og var ætlunin, að liann læsi læknisfræði, en þá 1) Sbr. 13. Gr.: Dægradvöl áOO—20J. Ilannes St. Johnscn. slveði það óvænta, að liann lagðist veikur og lá þunga legu og langa, jafnvel mestan hluta vetr- ar. Líklega liafa læknarnir ráðið honum frá því að halda áfram embættisnámi, en hvað um réði, Jiætti Hannes ölJu bóknámi og lagði fyrir sig verzlun. Var þetta heppilegt, ekki sizt fyrir kaupmannastéttina á íslandi, því að ef þessi góði bislcupssonur liefði annaðhvort orðið' læknir eða Jent í hempu á einhverju útkjáJkabrauði, hefði verzlunarstéttin fari’ð á mhs við að njóta eins sinna heiðvirðustu manna, sem var prýði stéttarnnar. En um Hannes var sagt,1) „að liann muni hafa verið meira náttúraður fyrir verzlun en vísindaiðkanir“, og hefur hann því lent á réttri hillu í lífinu. Eftir að Harines kom heim aftur frá Höfn, vann hann við verzlun í Reykjavík næstu árin, 1) Sbr. ísafold XII, 198. FRJÁLS VERZLUN 177

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.