Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1955, Blaðsíða 8

Frjáls verslun - 01.12.1955, Blaðsíða 8
— Nei. Dogson vill ekki kaupa borð, raulaði hann og leit á mig yíir gleraugun og hélt áfram að raula. Það yrði of dýrt í flutningi, sagði ég og pot- aði regnhlífinni í hann. — Dogson þykir of dýrt að flytja það heim, raulaði hann og hætti ekki fyrr en við komum upp úr kjallaranum. Við sáum gylltu könnuna á hæðinni fyrir ofan. Ég átti eitt yen, sem var eftir af tuttugu krónum dönskum er ég hafði skipt í Peking. Þessar gylltu könnur gátu tæplega kostað meirá en yen. Það var verið að taka þær upp úr kössum og stúlkan var að þurrka af þeim og raða þeim a borðið. — Spurðu hvað þær kosti. Þau töluðu dálítið af kínversku. — Það er ekki búið að verðleggja þær, en hún ætlar að spyrja. — Nei, nei. Það er ekki nauðsynlegt. Ég á hvort sem er enga peninga, sagði ég. Stúlkan var farin. — Við verðum að bíða eftir henni, sagði Wangi- boy. — Fjandinn eigi það, sagði ég á íslenzku. — Heyrdu, sagði hann. — Yfir kaldan eyðisand. — Heyrdu, heyrdu, sagði hann. Við héldum áfram að tala íslenzkuna okkar og stúlkan var nokkuð lengi í burtu og ljóst hún þurfti að hafa mikið fyrir þessu. Wangi-boy fór að raula og það voru rauðir drekar í hillunum hinu megin. — Ertu búinn að lesa A-kú eftir Lu Hsun, sagði Wangi-boy. — Já. —- Hvemig fannst þér. — Hún er afbragð. — Lu er fyrsta byltingarskáldið okkar. — Hún er afbragð þrátt fyrir það. — Hvað meinarðu. — Lu er góður rithöfundur. — Eins og þú ætlar að verða. — Ertu vissum ég ætli að verða það. — Ég vona það. — Ertu kannski að segja þetta til ég skrifi vel um Kína. — Ég veit þú skrifar vel um Kína. — Ekki nema þú hættir að kalla mig Dogson. — Ó, Doggi-boy. — Nú skrifa ég illa um Kína. — Dogson, Dogson, Doggy-boy. — Viltu í alvöru ég skrifi illa um Kína. — Þú skrifar sannleikann. — En ef þú gerir mig reiðan. — Reiðir menn skrifa tóma vitleysu um Kína. — Það er af því þið kallið þá nöfnum. — Hættu þá að kalla mig Wangi-boy. — Þú byrjaðir. — Það var bara framburðarskekkja sem þú færðir í stílinn. -— Vertu nu góður drengur, Wangi-boy. -— Já, Dogson. Stúlkan kom og sagði eitthvað á kínversku og brosti. Ég var að vona hún hefði ekki tekið nærri sér að snúast þetta. Wangi-boy talaði nokkur at- kvæði og stúlkan fór að búa um eina könnuna. — Hvað kostar hún, spurði ég. — Tvö yen, sagði hann. — Ég á ekki fyrir henni, sagði ég . — Þú ætlar að skrifa vel um Kína. — Það kemur ekki málinu við. Ég á eitt yen. — Þú ætlar að verða rithöfundur eins og Lu. — Vo bú-já she, sagði ég við stúlkuna. — Heyrdu, heyrdu, sagði Wangi-boy og talaði síðan á kínversku við stúlkuna, sem hafði hætt Framli. á bh. 163. 152 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.