Frjáls verslun - 01.12.1955, Qupperneq 9
I Brasilíu kaupa bersyndugir
syndakvittanir fram í fímann
Spjallað við Sveinbjörn Árnason um Brasilíuíerð
íslenzkir kaupsýslumenn gerast oft á tíðum víð-
reistir í leit að nýjum viðskiptasamböndum. Eru
vegarlengdir ekki alltaf settar fyrir sig, þegar
kanna verður möguleika á væntanlegum við-
skiptum, enda má segja, að þeir séu orðnir fáir
staðirnir á þessum hnetti, sem ekki hafa verið
heimsóttir af íslenzkum verzlunar- og kaupsýslu-
mönnum.
FRJÁLS VERZLUN hafði fregnir af því, að Svein-
björn Árnason verzlunarstjóri í Haraldarbúð hefði
í sumar brugðið sér alla leið suður fil Brasilíu í
þeim erindagerðum að athuga möguleika á aukn-
um innflutningi til Islands frá þessu fjarlæga landi,
þar sem sól ku oftast vera ,,í fullu suðri". Eins
og flestir þeirra, er eitthvað koma nærri verzlun
hér á landi, vita, þá eru ekki margir, sem hafa
meiri vöruþekkingu til að bera hérlendis en Svein-
björn, enda má segja, að hann hafi stundað verzl-
unarstörf allt frá blautu barnsbeini.
Þarf því enginn að vera hissa á því þótt Svein-
björn Árnason hafi orðið fyrir valinu, þegar senda
skyldi mann til Brasilíu til að kanna vöruframboð
þar í landi.
Sveinbjörn varð góðfúslega við beiðni FRJÁLSR-
AR VERZLUNAR, þegar farið var fram á við hann,
að hann skýrði lesendum blaðsins eitthvað frá
ferðalaginu.
Hver voru tildrögin að þinni löngu ferð?
Brasilíumenn hafa á undanfömum árum keypt
all mikið af saltfiski af okkur, en í staðinn höfum
við flutt inn kaffi, sykur og fóðurbæti. Viðskiptum
okkar við Brasilíu er þó þannig háttað, að við
höfum safnað innstæðum þar í landi. Þessvegna
hefur verið ríkjandi áhugi fyrir því að reyna að
kaupa meira af vörum frá Brasilíu en hingað til.
Sölusamband íslenzkra fískframleiðenda ákvað
að senda mann þangað suður, og var það eigin-
lega fyrir hvatningarorð Kristjáns Einarssonar
framkvæmdastjóra, að ég tókst þessa ferð á
hendur.
Þú hefur náttúrlega flogið suður eins og Dungal?
Já, ég lagði upp með Sólfaxa 22. júní og var
Kaupmannahöfn fyrsti áningarstaður. Síðan hélt
ég sem leið liggur um Amsterdam, London, Ziirich,
Genéve, Lissabon, Dakar í Afríku, Recife, Rio de
Janeiro allt til Sao Paulo. Ferðin frá London til
Sao Paulo tók um 45 tíma, og flaug ég með sömu
flugvélinni frá Zurich á leiðarenda. Var ferðalagið
nokkuð þreytandi, enda þótt höfð væri um 45
mínútna viðstaða á viðkomustöðum.
Hvemig var svo aðkoman til Brasilíu?
Hún var hin ákjósanlegasta. Á flugvellinum við
Sao Paulo voru mætt til að taka á móti mér ræð-
ismaður íslands og umboðsmaður S. í. F., Finn
Arnesen og kona hans, Astrid. Eru þau bæði af
norskum ættum og mörgum að góðu kunn hér
heima, því þau hafa heimsótt Island oftar en einu
sinni. Óku þau hjónin mér síðan heim til sín, og
bjó ég hjá þeim í bezta yfirlæti í heila viku. Yfir
hinu myndarlega heimili þeirra hvílir sannur og
viðkunnanlegur norrænn blær, og naut ég ósvik-
innar gestrisni meðan ég dvaldi þar.
Hvað getur þú sagt okkur að öðru leyti um dvöl
þína í Sao Paulo?
FRJÁLS VERZLUN
153