Frjáls verslun - 01.12.1955, Blaðsíða 10
Flugleiðin jrá London til Sao Paxdo tekur um 4-5 tíma.
Ég komst fljótt að því, hve Arnesen hjónin eru
vel kynnt í borginni. Naut ég góðs af því í ríkum
mæli í sambandi við allskonar heimboð og sam-
kvæmi, aðallega þó hjá fólki af evrópískum upp-
runa. 1 þessum boðum hitti ég menn, sem höfðu
verið á íslandi og þekktu jafnvel nokkra íslend-
inga. Ein daginn skoðaði ég alþjóðlega mál-
verkasýningu, og voru þar eingöngu „abstrakt"
myndir til sýnis. Þjóðareinkenni þessara málverka
voru ekki sýnileg og enga mynd var þama að
finna frá íslenzkum málumm. A sýningu þessari
fékk Norðmaður nokkur tvenn verðlaun.
Hvemig vai veðráttan?
Þegar ég kom til Brasilíu þann 1. júlí var þar
hávetur. Samt var hitinn í Sao Paulo þetta frá
16—22° C, eða eins og bezt gerist heima.
Hittirðu nokkra íslendinga í Brasilíuferðinni?
I Sao Paulo hitti ég Ingvar Emilsson hafrann-
sóknarfræðing og konu hans, Ástu Guðmundsdótt-
ur, en þau búa þar í borginni ásamt tveimur ung-
um sonum sínum. Hafði Ingvar verið þar syðra í
eitt ár á vegum alþjóða hafrannsóknarráðsins. Þá
hefur hann kennt við háskólann í Sao Paulo cg
stundað mælingar og hafrannsóknir úti fyrir strönd-
um Brasilíu. Virtist Ingvar hafa getið sér hins
bezta orðstírs fyrir störf sín þar í landi.
Er Sao Paulo ekki í örum vexti?
Jú, svo sannarlega. Hvarvetna gefur að líta ný-
tízku byggingar í smíðum, fagrar skrauthallir og
himinháa og stílhreina skýjakljúfa. Gömlu húsin
víkja ört fyrir þeim nýju og breiðstrætin skrýdd
trjám og fögrum blómum teygja sig í allar áttir.
Gömlu mennirnir hafa miklar áhyggjur af þess-
ari öru þróun. Segja, að þetta hljóti að enda með
hruni.
Þú heimsóttir svo Rio?
Já, og þar tók annar umboðsmaður S. I. F. á
móti mér — og raunar annar Norðmaður líka,
Kaare Ringseth að nafni, mesti ágætismaður. í
Rio var hitinn öllu meiri en í Sao Paulo og fór allt
upp í 30° C. — all þokkalegur vetrarhitil Þó varð
ég var við, að mönnum fannst ekkert of hlýtt,
því ég sá á nokkrum skrifstofum menn vera í
ullarpeysum til þess að halda á sér hita! Einn
daginn skrapp ég á hina heimsfrægu baðströnd
Copacabana, en þrátt fyrir hlýtt og gott veður að
mínu áliti var þar mjög lítið af fólki. Annars er
víst hitinn mikill á sumrin og fer stundum yfir 40°
C. Þá flýja þeir borgina, sem efni hafa á, í leit
að svalara loftslagi. Ringseth sagði mér, að um
Rio dc Janeiro er mcð jegurstu borgum í heimi.
154
FRJÁUS VERZLUN