Frjáls verslun - 01.12.1955, Blaðsíða 11
helmingur allrct Norðmanna, sem flyttust til Bras-
ilíu, sneru fljótlega aftur heim, þar sem þeir þyldu
ekki loftslagið.
Hvað bar nú aðallega fyrir augu í Rio de Jan-
eiro?
Borgin er talin með þeim glæsilegustu í heimi
og er innsiglingin nafntoguð fyrir náttúrufegurð.
Rio er skemmtileg borg, en hún morar af and-
stæðum, glaðværð og sorg, auðæfum og fátækt,
glæsilegum byggingum og hrörlegum hreysum,
fögrum breiðstrætum og þröngum krákustigum.
Kvenfólkið er glæsilegt tilsýndar með hrafntinnu-
svart hár og fagurbrúnan hörundslit. Annars er
fólk flest mjög elskulegt og kurteist í allri fram-
komu.
Hvað er að segja um verzlun og verðlag?
Verzlanir eru margar hverjar glæsilegar og
mikið er af vörum á boðstólum. En mér fannst
verðlag vera nokkuð hátt, sérstaklega á öllum
innfluttum vörum. T. d. kostar saltfiskur um 50
cruzeiros hvert kíló eða 25 krónur íslenzkar. Heim-
ilistæki sá ég víða í verzlunum en þau voru inn-
flutt og þessvegna mjög
dýr. Enda þótt bílar séu í
háu verði hér heima á fs-
landi, þá er það þó hverf-
andi borið saman við hina
hinminháu ,,prísa" í Brasilíu.
Þar kosta góðir amerískir
bílar hvorki meira né minna
en frá 300—500 þúsund
krónur, og fá þó færri en
vilja. Annars má segja, að
hægt sé að kaupa allt millt
himins og jarðar í Brasilíu
og jafnvel enn meira. Þeg-
ar kaþólskir halda sínar
miklu hátíðir til lofs og dýrð-
ar hinum helgu, þá geta
bersyndugir keypt synda-
kvittun allt að 7 ár aftur í tímann eða þá fram í
tímann, og gildir hún þá sem nokkurskonar
syndatrygging. Já, flest má nú fá fyrir peninga!
Er ekki gengisskráning margbreytileg í Bras-
ilíu?
Jú, það munu vera fimm skráð gengi í landinu.
Almennt gengi er 52 cruzeiros á móti £1, en svo
er aftur á móti hærra gengi á ferðamannagjald-
eyri eða 200 cruzeiros í hverju sterlingspundi. Þá
er sérstakt gengi á innfluttum og útfluttum vörum.
T. d. er gengi á íslenzkum fiski frá 184—190 cruz.
miðað við £1, og er það kallað íslenzkt pund.
Gengi á útflutningsvörum er þetta frá 145—152
cruz. Svonefnt bílagengi er langsamlegt hæzt, eða
frá 295—325 cruz. miðað við dollara. Gengið er
annars nokkuð breytilegt, og má sjá það daglega
skráð í dagblöðunum. Eitt af því fyrsta, sem bras-
ilískir kaupsýslumenn athuga á morgnana, þegar
þeir lesa blöðin sín með morgunkaffinu, er því
auðvitað gengisskráningin.
Gerðirðu nokkur innkaup í ferðinni?
Nei, ekki gerði ég það. Aðal tilgangur ferðar
minnar var að reyna að finna vörur, er hæfðu
okkar markaði að verði og gæðum og við ekki
getum fengið frá ,,clearing''-löndunum. Ég heim-
sótti fjöldann allan af fyrirtækjum og athugaði vörur
og vöruverð. Naut ég þar góðrar aðstoðar um-
boðsmanna S. f. F. í Sao Paulo og Rio. Verðlag
á hinum brasilísku vörum reyndist yfirleitt óhag-
stætt fyrir okkur, en þó eru í athugun verðtilboð á
nokkrum vörutegundum, sem ég skoðaði í ferð-
inni.
Og svo hefur þú auðvitað hraðað ferðinni heim
í hina óviðjafnanlegu sunnlenzku rigningu?
Heimferðin gekk í alla staði vel. Ég flaug frá Rio
sem leið ligur um Caracas, Panama City, Guate-
mala, Texas, Los Angeles, Chicago, New York,
Gæsaflóa á Labrador og svo á leiðarenda til
Reykjavíkur. Löng ferð en þó fljótfarin með þess-
um hraðfleygu loftfákum. Kom ég heim í ágúst-
byrjun og hafði þá ferðin tekið um fimm vikur.
— ns.
FBJÁLS VERZLUN
155