Frjáls verslun - 01.12.1955, Blaðsíða 16
stofunni logaði glatt á fáguðum koparlampa, og
sex logandi tólgarkerti voru sitt á hverjum rúm-
mara. Eitt var fyrir hvert barnanna, og það sjötta
átti Lauga gamla, sem sat uppi í rúmi sínu með
spenntar greipar. Það gljáði á hreinsópað moldar-
gólfið, og í skini ljósanna mótaði fyrir hverjum
kvisti og hverri örðu í hinum breiðu rekaviðar-
flettingum súðarinnar.
Yfir í húsinu sat húsfreyja fyrir opnum dyrum
og hjá henni Þóra litla, sem var yngst af börnun-
um. Beint á móti þeim sat yngsti drengurinn, Gísli.
Eldri systkinin sátu í frambaðstofunni, Sigrún
hjá Vilborgu, og Sigurður og Bjarni hjá Einari,
vinnumanninum. Einar var maður miðaldra, lág-
ur í sæti, en hnellinn, rauðbirkinn, síðskeggjaður
og úfinhærður. Fyrir ofan hann í rúminu var lítið
trog, sem í voru nokkur allstór stykki af hangikjöti
— og biturlegur hnífur. Yfir svip hans og Vilborg-
ar var syfjuleg ró, en friðsældarleg gleði ljómaði
úr augum bamanna og gömlu konunnar. Hús-
freyja sat með hendur í kjöltu, og það var eins
og hún tæki ekki eftir umhverfinu, var einhver
stirðnun í svipnum. Gamli maðurinn sat á rúminu,
sem næst var lýsislampanum, og hafði í höndum
þykka bók. Hann bar hana upp að ljósinu og
blaðaði í henni, hélt henni langt frá sér. Hann var
skjálfhentur, og annað veifið gaut hann hornauga
til húsfreyjunnar. Nú virtist hann hafa fundið í
bókinni þann stað, sem hann leitaði að. Hann lét
hana síga á kné sér, leit af einum á annan í
baðstofunni, fyrst og seinast á húsfreyjuna, og
síðan hóf hann upp bókina, hélt henni báðum
höndum, mælti lítið eitt hriktandi rómi:
,,Þá byrja ég lesturinn í Jesú nafni."
1 sömu svipan heyrðist rödd Þóru litlu:
„Hvar er Jesúbarnið, mamma? Fáum við ekki
að sjá það?"
Gamli maðurinn ræskti sig og leit yfir í húsið.
Svo heyrðist þá veikur og titrandi rómur Laugu
gömlu:
„Nóttin var sú ágæt ein,
í allri veröldu ljósið skein,
það er nú heimsins þrautamein
að þekkja hann ei sem bæri. . •."
Húsbóndinn leit við henni, grettur og hvasseyg-
ur. Hann ræskti sig á ný og sagði síðan harkalega:
„Hvað er þetta, Lauga gamla? Ætlarðu að trufla
sjálfan jólalesturinn í meistara Jóni með þessu
e-he, — héma murri?"
Gamla konan reri ofurlítið í rúmi sínu, sem var
fyrir gafli baðstofunnar. Skugginn hennar flökti
um dökkan stafninn. Hún þagði, en bros lék um
þunnar og bláar varirnar. Það var eins og hún
vissi ekki af því, sem fram fór.
Svo fór þá gamli maðurinn að lesa, las með
hátíðlegum seimi:
„I þann tíma. Og það bar til á þeim dögum, að
það boð gekk út frá keisaranum Ágústó, að heim-
urinn allur skyldi skattskrifast. (Þessi skattskrift
hófst fyrst upp þá Cyreníus var landstjórnari í
Cyría). Og þeir fóru allir að láta skattskrifa sig,
hver til sinnar borgar. Þá fór Jóseph af Galilæa
úr borginni Nazareth upp f Judeam til Davíðs borg-
ar Bethlehem, af því, að hann var af húsi og
kyni Davíðs, so að hann léti skattskrifa sig þar
með Maríu sinni festar-konu óléttri. En það skeði
so, þá er þau voru þar, að þeir dagar fullnuðust,
að hún skyldi fæða, og hún fæddi sinn frumgetinn
son og vafði hann í reifum, og lagði hann niður
í jötuna, því að hún fékk ekkert annað rúm í gesta-
herberginu. . . ."
Gamli maðurinn leit upp úr postillunni og brá
vísifingri vinstri handar upp að auganu. Svo sagði
hann argur:
„Það er eins og hafi farið kusk í augað á mér,
nema það sé elliglýja-"
Hann hóstaði lágt, og svo barst þá um bað-
stofuna raulhljóð Laugu gömlu, sem reri eftir hljóð-
fallinu:
„Fjármenn hrepptu fögnuð þann,
þeir fundu bæði guð og mann,
í lágan stall var lagður hann,
þó lausnari heimsins væri;
með vísnasöng ég vögguna þína hræri."
Húsbóndinn starði á gömlu konuna, augun upp-
sperrt, bar undarlega mikið á hvítunni. Hann skók
postilluna tveim höndum, opnaði munninn, en
sagði ekki neitt, því að athygli hans dróst að hús-
freyjunni. Hún hafði staðið á fætur, varpað yfir
sig ullarhyrnu og bundið klút um höfuð sér, og
nú gekk hún fram úr húsinu, stóð síðan við hurð-
ina fram í göngin, alvarleg og festuleg, leit á
Einar, vinnumann, og mælti lágum, en styrkum
rómi:
„Kom þú með mér, Einar minn. Það er bezt þú
farir í buruna þína og setjir upp hettuna. Hann
er víst svalur úti núna."
Einar stóð upp, tók buruna af rúmmaranum og
fór í hana, gróf hettuna undan höfðalaginu, setti
hana upp og batt hana undir kverk.
1G0
FRJÁLS VERZLUN