Frjáls verslun - 01.12.1955, Side 22
dreifðar. Flugmálastjóri sýndi þá rausn og þann
skilning á nytsemi þessa starfs, að hann bauðst
til þess að sjá um kostnað við orðtökustarfið. Þótti
orðabókarnefnd einsætt að taka þessu boði. Var
Baldur Jónsson stud. mag., sem í sumarleyfum
hefir verið starfsmaður Flugfélags Islands og er
því allkunnur því máli, er notað er við flug og flug-
afgreiðslu, ráðinn til þess ao annast orðtökuna.
Leysti Baldur þetta starf mjög vel af höndum. Ég
hefi síðan unnið úr safni Baldurs og lagt fyrir orða-
bókarnefnd til endurskoðunar. Auk þess hefi ég
safnað nokkru (um 1000 orðum) til viðbótar um
flughreyfilinn úr handriti nýþýddrar bókar um það
efni.
V.
En hver eru næstu verkefni, sem orðabókarnefnd
hefir hugsað sér, að tekin verði til athugunar, þeg-
ar flugmálaheftinu er lokið? Það er ekki að fullu
ráðið enn, en ætla má, að Nýyrði V eða Nýyrði
VI fjalli um orð, er varða verzlun og hagfræði.
Ég hefi þegar safnað nokkrum þúsundum orða
úr þessum greinum. Mér er þó ljóst, að margt
vantar enn, og verður reynt að bæta úr því. Ég
vil engu spá um það, hvenær þetta hefti kemur út.
Mér þykir ósennilegt, að það verði á árinu 1956.
Engum er akkur í því, að slíkum verkum sé hroð-
að af.
Ég vil sérstaklega æskja þess, að kaupsýslu-
menn og verzlunarmenn almennt hafi samvinnu
við orðabókarnefnd, meðan heftið um verzlunar-
mál verður á döfinni. Tvenn samtök verzlunar-
manna sýndu þann skilning og þroska að leggja
fram fé til starfsemi Orðanefndar Verkfærðinga-
félagsins, enda gaf sú nefnd út orðasafn úr verzl-
unarmáli á sínum tíma. Sérstaklega vildi ég beina
þeim tilmælum til forystumanna í verzlunarmálum
að leggja nefndinni lið við þýðingar á erlend má’.
Það skiptir miklu máli, að þær séu vel af hendi
leystar. Framlag þingsins, þótt góðra gjalda sé
vert, er satt að segja svo lítið, að þeir, sem hingað
til hafa þýtt fyrir nefndina, hafa fæstir fengið verk
sitt greitt. Þetta er að vísu ekkert einsdæmi, því að
sorglega oft hefir skort skilning á því á Islandi, að
þeir, sem vinna andlega vinnu, þurfi einnig á laun-
um að halda. Ég efast ekki um það, að samtök
kaupsýslumanna og verzlunarmanna muni reyn-
ast nefndinni hjálpleg við að leysa þennan vanda
og ýmis önnur mál, sem lausnar kunna að krefjast.
------------------------o----
Nóbelsverðlaunaskáldið
HALLDÓR KILJAN LAXNESS
„Nú þurfum við Hemingway ekki að fá lánaða
peninga hvor hjá öðrum lengur."
166
FRJÁLS VERZPUN