Frjáls verslun - 01.12.1955, Blaðsíða 23
Síðasfi
hellisbúinn
Rabbað við Indriða Guðmundsson kaupmann
Ég átti nýlega leið um Þingholtsstrætið og not-
aði þá tækifærið til að líta inn til Indriða Guð-
mundssonar fyrrverandi bónda og kaupmanns,
en hann býr ásamt konu sinni, Guðrúnu Kolbeins-
dóttur, að nr. 15. Mér er boðið inn, hitti hjónin,
legg fram nokkrar spurningar og fæ greið svör.
Hvar og hvenær ert þú fæddur?
Ég er fæddur 7. desember 1885 að Haga í Gríms-
nesi. Ég stend því á sjötugu. Foreldrar mínir voru
Hólmfríður Guðnadóttir og Guðmundur Björns-
son. Uppalinn var ég hjá þeim Gróu Jónsdóttur
og Guðmundi Pálssyni, er bjuggu á Hjálmsstöð-
um í Laugardal, en um níu ára gamall fluttist ég
til föður míns, er bjó í Reykjavík-
Hvað tók svo við?
Þegar ég fór að stálpast, réðist ég til Valgarðs
Ólafssonar Breiðfjörð, en hann var all umfangs-
mikill í Reykjavík þá, átti m. a. Aðalstræti 8, er
lengi gekk undir nafninu Fjalakötturinn. Það kom
að því, að ég vildi fara að mennta mig í einhverri
iðn og lærði trésmíðar. En framtíðin hafði nú ekki
falið mér það lífsstarf.
Getur þú ekki sagt mér eitthvað frá uppvaxtar-
árunum í Reykjavík?
Ja, ég veit nú ekki hvað það ætti að vera. Fyrstu
árin var ég við ýmis störf. Meðal annars gætti ég
hesta fyrir ferðamenn. Tók ég við þeim í Reykja-
vík og flutti suður í Fossvog og gætti þeirra þar.
Kom þá fyrir, að ég þyrfti að liggja hjá þeim yfir
nóttina og fékk þá inni í tjöldum hjá ferðamönn-
um.
Einu sinni kom ég seint með hesta suður eftir
og skreið inn í tjald, er þar var. En er ég vaknaði
morguninn eftir, var tjaldíð farið og ferðamaðurinn
á bak og burt. Sama var að segja um tvö góð
beizli, sem ég hafði undir höndum, og varð faðir
minn að borga þau að einhverjum hluta eftir ekki
svo litla rekistefnu.
Svo var ég um tíma við að bera út og selja
mjólk fyrir hjón, er bjuggu hér í bænum. Þar var
húsmóðirin húsbóndinn á heimilinu, aðgætin og
knöpp. Kom það fyrir að hún vildi halda því
fram, að upp á aurána vantaði, en mjólkin var
aðallega mæld og seld í pelamáli og trúlega ekki
of vel mæld í upphafi.
Kennari minn á þessum tíma var séra Friðrik
Friðriksson, hinn ágætasti maður eins og alþjóð
er kunnugt um, en honum kynntist ég í K.F.U-M.
Hvað um skemmtanalífið á þessum árum?
Hér var mikið um leikstarfsemi. T. d. sýndu
skólapiltar, Leikfélag Hafnarfjarðar og Leikfélag
prentara. Meðal þeirra, er fram komu á leiksvið-
inu voru Pétur Á. Jónsson óperusöngvari, Ólafur
Björnsson ritstjóri, Björn Þórðarson ráðherra, Jakob
Möller ráðherra og Magnús Pétursson héraðslækn-
ir. Þar var nú glatt á hjalla.
Dóttir Indriða situr hér jyrir framan heUismunnann.
FR-TÁLS VERZLUN
167