Frjáls verslun - 01.12.1955, Síða 34
en á þessum ámm festi hann ráð sitt. Hann
giftist myndarkonu, Sigríði, dóttur Símonar
Hansen kaupmanns í Reykjavík, en hann var
einn hinna svokölluðu Bátsandabræðra, sem
voru fjórir og bjuggu allir í Reykjavík. Þetta
voru allt börn Henriks Hansen kaupmanns á
Bátsöndum á Miðnesi, sem varð að yfirgefa
kaupstað sinn, þegar hann lagðist í auðn af sjáv-
arflóðinu mikla árið 1800. — Ef að líkum
lætur hefur Hannes unnið þessi ár við verzlun
tengdaföður síns, Símonar Hansen, því að árið
1843 eignaðist iiann húseignir hans, og tók við
verzlun hans. — Það voru hin svokölluðu Rand-
ersku hús, sem stóðu við Hafnarstræti 4 og
Veltusund, en þeim fylgdi ióð að Austurstræti,
þar sem nú stendur húsið' nr. 3 við það stræti.
Tengdafaðir hans, Símon gamli Hansen, hafði
eignazt þau árið 1813 eftir Pál Breckmann, sem
var einn fyrsti „borgari“ í Reykjavík, eftir að
bærinn fékk bæjarréttindi, og verzlunareinokun
var aflétt 1787. —
í þessum húsum bjó svo Hannes St. Johnsen
til dauðadags og rak þar verzlun, „litla en mjög
farsæla",1) þangað til haustið 1873, að hann af-
henti hana yngsta syni sínum, Símoni H. John-
sen, „sem var menntaður maður, lipurmenni í
umgengni og vel látinn af alþýðú manna“. —
Símon var sænsk-norskur Vicekonsúll, en hans
naut ekki lengi við, og andaðist hann á bezta
aldri ári’ð 1884, eða árið áður en faðir hans dó.
— Hann dó úr taugaveiki, ásamt 2 bömum sín-
um, í faraldri, sem þá gekk yfir bæinn. Þá tók
við eigninni bróðir hans, Steingrímur Johnsen,
síðar söngkennari Menntaskólans, og verzlaði
þar nokkur ár, en seldi svo Gunnari kaupmanni
Þorbjarnarsyni, sem byggði stórhýsi á horni
Hafnarstrætis og Veltusunds. Verzlaði Jón
Hjartarson lengi í hinni gömlu búð Hannesar St.
Johnsen. — Gunnar seldi svo Sigþóri Jónssyni
úrsmið húsin og verzlar hann þar enn.
1) Sbr. Kl. J.: Saga Rvíkur.
BLÓM & ÁVEXTIR
25 ára
Blómaverzlunin Blóm og óvextir átti 25 árc
starfsaímæli hinn 15. nóv. s. 1., en hún var stofnuð
þann dag árið 1930. Stofnendur verzlunarinnai
voru frú Ólafía Einarsdóttir í Hofi og frú Asta Jóns-
dóttir, sendiráðherrafrú í Osló, en tildrög til stofn-
unarinnar munu hafa verið þau, að um það leyti
var byrjað á því að rækta blóm hérlendis í þai
til gerðum gróðurhúsum. Fram að þessum tíma
höfðu starfað hér nokkrar blómasölur, sem seldu
innflutt blóm og afskorin pottablóm.
Blóm & Avextir er fyrsta eiginlega blómaverzl-
unin, sem byrjar á því að selja innlenda blóma-
framleiðslu og hefur sú sala aukist jafnt og þétt
með hverju ári, sem líður.
Auk blóma og blómaskreytinga hefur verzlunin
á boðstólum allskonar vörur úr postulíni og kera-
mik.
Núverandi eigandi verzlunarinnar er Hend-
rik Berndsen og hefur hann rekið hana frá árinu
1942. 1 tilefni af 25 ára afmælinu hefur verið gerð
gagngerð breyting á verzluninni og hún færð í
nýtízku horf. Er verzlunin öll hin smekklegasta.
Eigaiidi jyrirtœkisins, Hendrik Bcrndsen, í verzlun sinni.
„Frjáls verzlun" óskar eigandanum til hamingju
með þessi tímamót og vonar að verzlunin megi
blómgast og bera góðan ávöxt í framtíðinni.
178
FUJÁLS VERZLUN