Frjáls verslun - 01.12.1955, Síða 35
Verzlunarmenn óska eftir aðild að
stjórn IMSÍ
--------------------------------------------------
Þann 6. desember s.l. var lagt fram í efri deild Alþingis
frumvarp til laga um Iðnaðarmólastofnun Islands.
í frumvarpinu segir. að stofnunin skuli m. a. vinna að
hagkvæmari vinnubrögðum í vörudreifingu landsmanna.
IMSÍ hefur þegar farið inn á þessa braut. m. a. með
því að hafa forgöngu um komu erlendra sérfræðinga
hingað til lands til að fjalla um þessi efni. og þó haft
samstarf við viðkomandi stéttarfélög, þar á meðal við
V. R. Nú bregður svo við, að í frumvarpi þessu er ekki
gert ráð fyrir því, að verzlunarmenn eigi aðild að stjórn
IMSÍ, þótt t. d. Verzlunarráð íslands hafi það. í tilefni af
þessu ósamræmi hefur félagsstjórn Verzlunarmannafé-
lags Reykjavíkur sent iðnaðarmálaráðherra og iðnaðar-
málanefnd efri deildar Aþingis eftirfarandi bréf:
I ———-----------------——~— ---—-— -— —-——“v-i
1 írumvarpi því til laga um Iðnaðarmálastoínun
íslands (þingskj. 154), sem lagt var fram á Alþingi
í gær, eru í 3. gr. ákvæði um stjórn stoínunarinn-
ar. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur vill hér með
leyfa sér að vekja athygli háttvirtrar iðnaðarneínd-
ar á því, að þar er eigi gert ráð fyrir því, að
verzlunarmenn eigi neinn fulltrúa í stjóm IMSl.
Frumvarp það, sem nú liggur fyrir Alþingi, hef-
ur tekið talsverðum breytingum frá frumvarpi því
til laga um Iðnaðarmálastofnun Islands, sem lá
fyrir síðasta Alþingi. Ein veigamesta breytingin
er sú, að í frumvarpinu á þingskj. 154 er gert ráð
fyrir, að stofnunin skuli ekki aðeins vinna að því
að koma á hagkvæmari vinnubrögðum í íslenzk-
um iðnaði, heldur einnig f VÖRUDREIFINGU
LANDSMANNA. Kemur þetta þegar fram í fyrstu
málsgrein 1. gr. frumv., þar sem markmið stofn-
unarinnar er ákveðið, en einnig síðar í greininni,
í 1., 4. og 12 tölulið.
Vér teljum útvíkkun þá á starfssviði stofnunar-
innar, sem í þessu felst, vera sjálfsagða, enda er
þessi skipan mála í samræmi við það, sem frænd-
þjóðir vorar, Danir og Norðmenn, hafa talið bezt
henta sér. Kemst neíndin, sem samdi frumvarpið,
svo að orði um þessa meginbreytingu í aths. um
1. gr. frumv.:
„Þá hefur reynsla annarra þjóða í þessum efn-
um sýnt, að fullum árangri verður ekki náð, nema
jafnhliða sé unnið að endurbótum á sviði vöru-
dreifingar. Heimsóknir erlendra vörudreifingarsér-
fræðinga í sumar hafa sýnt, að mikill áhugi er
meðal verzlunarmanna og iðnrekenda um endur-
bætur á sviði vörudreifingar, er verði til hags fram-
leiðslunni, verzluninni og sfðast en ekki sízt neyt-
endum í landinu. Miklar vonir eru tengdar við
nýbreytni sjálfsafgreiðslufyrirkomulags í verzlun-
um, og Iðnaðarmálastofnunin hefur gengizt fyrir
komu erlendra sérfræðinga til þess að kynna al-
menningi þessi mál. DREIFINGARTÆKNIN ER
ORÐIN ÞÁTTUR I STARFI STOFNUNARINNAR,
OG ER ÞAÐ I SAMRÆMI VIÐ ÞRÓUNINA í NÁ-
GRANNALÖNDUNUM, T. D. 1 NOREGI OG DAN-
MÖRKU." (Leturbr. vor).
I samræmi við þessa breytingu á verksviði
stofnunarinnar er lagt til f 5. gr. frumvarpsins, að
Verzlunarráð Islands eigi sæti í stjórn hennar, en
fulltrúi frá V. I. var þegar s.l. sumar skipaður í
stjórn IMSl. Hins vegar skýtur þar skökku við, að
ekki er gert ráð íyrir því, að launþegar í verzlun-
arstétt, verzlunarmennirnir, eigi að hafa nein áhrif
á skipan þeirra mála, sem þeir sjálfir eiga að
vinna að. Ófaglært fólk á að eiga sinn fulltrúa,
tilnefndan af Alþýðusambandi Islands og fag-
lærðir iðnaðarstarfsmenn, iðnsveinarnir, eiga full-
trúa tilnefndan af Iðnsveinaráði ASI. Hvers eiga
verzlunarmennirnir að gjalda?
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur beinir ein-
drengnum tilmælum til háttvirtrar iðnaðarnefndar
um að hún hlutist til um, að frumvarpinu verði
breytt á þann veg, að verzlunarmenn fái sæti í
stjórn Iðnaðarmálastofnunarinnar tilnefndan af
Verzlunarmannafélagi Reykj avíkur.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur er elztu sam-
tök verzlunarmanna hér á landi og á það 65 ára
afmæli á næsta ári. Um langt skeið var V.R. einu
samtök verzlunar og kaupsýslumanna. Eftir því
sem tímar liðu töldu kaupsýslumenn nauðsynlegt
FUJÁLS VERZLUN
179