Frjáls verslun - 01.12.1955, Side 37
►
f
1
CARL FINSEN FOR-
STJÓRI lézt 8. nóvember
s.l. eítir fremur stutta legu.
Hann varð rösklega 76
ára gamall, en Carl var
fæddur í Reykjavík 10.
júlí 1879. Foreldrar hans
voru hjónin Ole Peter
Finsen póstmeistari og
María Kristín Þórðardótt-
ir kona hans. Carl Finsen
gekk í Lærða skólann í
Reykjavík og lauk þar 4- bekkjar prófi. Snemma
beindist hugur hans að viðskiptum og ungur að
árum réðist hann til Thomsensv'erzlunar. Síðar
vann Carl hjá Brydesverzlun, bæði í Reykjavík og
Hafnarfirði. Þegar Samábyrgð íslands á fiskiskip-
um var stofnuð árið 1909, réðist hann til starfa
hjá því fyrirtæki. Ári síðar stofnaði Carl Trolle
vátryggingaskrifstofu í Reykjavík og gerðist Carl
Finsen þá jafnframt starfsmaður hans. Á árunum
1917—1918 var hlutafélagið Trolle & Rothe stofn-
að, og var Carl þá gerður að forstjóra þess. Því
starfi gegndi hann til hins síðasta. Var hann eíg-
andi fyrirtækisins s.l. 28 ár. Þá var Carl jafnframt
forstjóri Samábyrgðarinnar um tíma og gegndi
þar störfum tryggingaráðunauts allt til dauðadags.
Hann var einn af stofnendum Vátryggingafélags-
ins h.f. og stjómarformaður þess fyrirtækis.
Carl Finsen hefur án efa átt að baki einn hinn
lengsta starfsferil í þágu íslenzkra tryggingamála.
Hann var ráðvandur og heill í sínu starfi og
sannreyndur sómi sinnar stéttar. Carl Finsen var
fremur hæglátur maður og lét ekki mikið á sér
bera á opinberum vettvangi. Þeir, sem áttu því
láni að fagna að kynnast honum, geyma minn-
ingu um vingjarnlegan og hugprúðan mann, sem
öllum vildi gott gera. Hann var ríkulega gæddur
samvizkusemi og háttprýði og ástundaði starf sitt
ætíð með kostgæfni. Carl var glaðlyndur og
skemmtilega ræðinn, enda var ávallt ánægjulegt
að hitta hann að máli og njóta viðkynningar hans.
Minningin um Carl Finsen mun seint gleymast,
því hann reisti sér ævarandi minnisvarða með
brautryðj andastarfi sínu í þágu íslenzkrar trygg-
Hálfrar aldar afmœli
Verzlunarskólans
Verzlunarskóli íslands minntist hálfrar aldar afmælis
síns með veglegum hátíðarhöldum 15. október s.l. Skóla-
setning fór fram kl. 10 árdegis þann dag í Þjóðleikhús-
inu og fluttu þar m. a. ávörp forystumenn hinna ýmsu
samtaka kaupsýslu- og verzlunarmanna.
FRJÁLS VERZLUN birtir hér ávarp það, sem formaður
V. R.. Guðjón Einarsson, flutti við skólasetninguna.
1 apríl síðastliðnum minntist verzlunarstéttin þess,
að 100 ár voru liðin frá því, að verzlunin var gefin
írjáls á Islandi.
I dag minnumst við þess, að Verzlunarskóli ís-
lands hefur starfað í 50 ár-
Eftir að verzlunin var gefin frjáls, opnuðust augu
manna fyrir því, að „menntun er máttur''. Islenzkir
verzlunarmenn þurftu að leita sér menntunar ut-
an landsteinanna. Þetta var almenningi ekki
kleift. Þess vegna réðust Kaupmannafélagið og
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur í að stofna
verzlunarskóla á Islandi. Sögu skólans þarf ég
ekki að rekja hér, en ýmsir örðugleikar steðjuðu
að í fyrstu, en með sameiginlegu átaki stéttarinn-
ar býr skólinn nú við sæmileg húsakynni og lætur
í té góða fræðslu til nemenda sinna. Markmiðið
er varanleg skólabygging og enn aukin menntun.
Verzlunarskóli Islands hefur verið og er einn af
máttarstólpum hinnar íslenzku verzlunarstéttar, ís-
lenzku þjóðarinnar.
Innan V. R. hafa verið átök undanfarin ár, og
þarf ég ekki að skýra þau frekar, en sættir tókust,
sem betur fer, á s. 1. vori, þar sem aðilar gátu fall-
izt á að láta skólann fá stóran hluta af eignum
félagsins, til þess að bæta aðbúð nemendanna og
auka gengi skólans. Þetta sýnir hug verzlunar-
stéttarinnar til skólans, og þarf ég ekki að hafa
fleiri orð um það. Við þetta tækifæri flyt ég skól-
anum heilla- og árnaðaróskir frá V. R. Það er
ósk okkar, að skólinn megi f framtíðinni, sem
hingað til, brautskrá vel menntað og dugandi fólk,
sem verður sómi stéttarinnar og nýtir þjóðfélags-
þegnar. Heill Verzlunarskóla Islands.
ingarstarfsemi. Eftirlifandi konu hans, frú Guð-
rúnu, og öðrum ástvinum er hér með vottuð inni-
legasta samúð.
i
FBJÁLS VKRZLUN
181