Frjáls verslun - 01.12.1955, Qupperneq 38
Gömul verzlun í glœsilegum húsakynnum
Húsgagnaverzlun Kristjáns Siggeirs-
sonar & Co. opnaði verzlun sína í nýj-
um og glæsilegum húsakynnum við
Laugaveg nr. 13, laugardaginn 15. okt
s. 1.
Hið nýja hús fyrirtækisins er 5 hæðir
auk kjallara og turna. Er það stílhreint
og hin mesta bæjarprýði. Verzlunin
hefur til umráða 3 hæðir í nýju bygg-
ingunni, þ. e. kjallara, götuhæð og
hæðina þar fyrir ofan. Afgreiðslusalir
eru stórir og bjartir og öllu fyrirkomið
á smekklegan hátt.
Húsgagnaverzlun Kristjáns Siggeirs-
sonar h.f. var stofnsett árið 1919 í timb-
urhúsi því, er áður stóð á lóð þeirri sem
nýja húsið hefur verið byggt á- Árið
1928 var byggt fjórlyft steinhús við
hliðina á áðurnefndu timburhúsi, og
var fyrsta hæð og kjallari, auk gamla
hússins, notað undir starfsemina. Um
þetta leyti jókst framleiðsla fyrirtækis-
ins á húsgögnum og hafði það í för
með sér ,að ný og betri húsakynni voru
reist.
1 hinum nýju húsakynnum er fyrir-
komulag verzlunarinnar þannig háttað,
að á götuhæð eru ýmsar tegundir hús-
gagna, auk þess sem húsgögnin verða
einnig í kjallara verzlunarinnar, en með
því móti ætlar fyrirtækið að leitast við
að þjóna viðskiptavinum sínum á sem
beztan hátt.
Palli litli hafði verið við hjónavígslu í kirkju.
„Af hverju tókust brúðhjónin í hendur fyrir alt-
arinu," spurði hann pabba sinn.
„Þetta er bara formsatriði, drengur minn,” svar-
aði faðir hans. „Rétt eins og þegar hnefaleika-
menn takast í hendur, áður en þeir byrja að slást."
ISLENZK FYNDNI
★
Eldra fólkið, sem undrast hvemig unga kyn-
slóðin nú á dögum er, ætti að athuga hvaðan sú
kynslóð er ættuð. FEMINA
★
Hættið að nöldra út af veðrinu, Um níu-tíundu
hlutar mannkynsins gætu aldrei hafið samræður,
ef veðrið væri ekki breytilegt. FEMINA
*
182
FHJÁLS VERZLUN