Frjáls verslun - 01.05.1959, Síða 18
Með konimúnista innanborðs á þjóðarskútunni.
mennirnir að halda ferðinni áfram, fyrr en liðinn
væri sá dagafjöldi, sem það hefði tekið þá að fara
leiðina fótgangandi. Sálir þeirra höfðu orðið eftir,
og þeirra urðu þeir að bíða. Eins hafa sálir margra
góðra íslendmga orðið eftir og ekki getað fylgzt
með hinnt öru þróun í samgöngum og vígtækni,
sem orðið hefir á síðustu árum.
En hvað er það, sem við þurfum að horfast í
augu við í dag? Það, að við erum í miðri hringiðu
heimsins, að Einbúinn í Atlanzhafi er í dag Virk-
ið í norðri. Það, að hversu fegntr sem við vildum,
getum við ekki dregið okkur ót úr skarkala hcims-
ins. Við getum minnzt þess með trega, þegar feð-
urnir frægu og frjálsræðishetjurnar góðu komu
austan um hyldýpis haf hmgað í sælunnar reit og
undu svo glaðir við sitt. I dag eru örlög okkar
tvinnuð örlögum annarra þjóða, hvort sem okkur
er það ljúft eða leitt.
Við verðum ennfremur að horfast í augu við
það, að nú eru hin mestu átök í heiminum, hinir
mestu örlagatímar. Vestræn menning er í hættu
fyrir árás austrænnar heimsveldisstefnu. Það er
vandalaust að benda á margar syndir vestrænna
valdhafa, bæði fyrr og nú. En eru þær syndir svo
stórar, að við viljum kasta á glæ þeim hugsjónum,
sem við höfum átt æðstar í þúsund ár í þessu landi,
og forfeður okkar jafnt kristnir sem heiðnir áttu,
áður en Island var byggt? Sá á kvölma, sem á völ-
ína. Viljum við selja hugsjónina um frelsi sálar-
innar og rótt manna og þjóða til þess að ráða mál-
um sínum og fá að launum einræði hmna sið-
minnstu manna, sem sögur fara af um margra
alda skeið?
Hcr þýðir ekki að tala um hlutleysi. Þótt við
værum allir af vdja gerðir, er hnattstaða landsms
sú, að Island hlýtur að verða virki annarshvors að-
íljans, ef til vopnaðra átaka kemur milli Rússa og
Vesturveldanna. „Hvenær sem kallið kemur, kaup-
ir sig enginn frí.“
Kommúnistar og dindlar þeirra reyna að rugla
hugsun manna um þetta atnði, reyna að telja
þeim trú um, að átök stórþjóðanna komi okkur
ekkert við, við eigum að vera hlutlausir í þeirra
deilu. Þetta er línan frá Moskvu, svefnþormð, sem
venð er að stinga íslendinga td þess að þeir sofm
á verðmum, td þess að landið verði varnarlaust, er
Rússar þurfa á því að halda sem herstöð. Þrátt
fyrir þetta hefir langsamlegur meirihluti íslenzku
þjóðannnar lýst sig fylgjandi því, að ísland taki
þátt í varnarbandalagi vestrænna þjóða. En gallinn
er sá, að hjá mörgum þessara manna, og ein-
mitt hjá þeim, sem í dag fara með völdin, er sál-
in ekki nokkrar dagleiðir á eftir þróun tímanna,
btín á sjö ára ferðalag eftir td þess að ná þeim tíma-
mótum, þar sem við stöndum í dag.
Sálir þessara manna eru grónar í þau fótspor,
sem þeir mörkuðu sór ánð 1949- Þeir voru, sumir
hverjir, stoltir af því, er þeir gerðu Island að heims-
viðundri með þingsályktunmni frægu. ,,Hafa
kommúmstar keypt ykkur, eða er þetta ,,black-
mad“ td þess að hafa meira fe ut úr Bandaríkjun-
um?“ var spurning, sem óg fókk oft að heyra síð-
ustu vikurnar, sem óg var 1 þjonustu ríkisstjórnar
íslands. Á alþjóðavettvangi er nú farið með ísland
eins og kenjóttan krakka, reynt að láta vel að því,
meðan beðið er eftir þvi að oþekktarpúkinn fari
úr ríkisstjórn landsins. Það verður að segja hverja
sögu eins og hún gengur.
18
FRJÁLS VERZLUN — FYLGIRIT