Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1960, Side 7

Frjáls verslun - 01.12.1960, Side 7
Iiæstu gjaldendur eru erabættismenn og kaup- menn: Landphysicus Ivlog (j>. e. Tómas Klog land- læknir) greiðir 2 rd., en hámarksgjald, sem er 3 rd., greiða t. d. Trampe greifi, stiftamtmaður, Frydens- berg bæjarfógeti, Kiöbmand Petræus, Factor Faber, den Randerske Handel o. fl. Lögregluþjónar bæjarins (,,Politibetienterne“), eru taldir sem einn gjaldandi, og greiða alls 1 rd. Bæjarstjórn og vatnsmálin Viðfangsefni Reykjavíkurbæjar voru ekki marg- brotin fyrstu áratugina, en meðal þeirra helztu voru vatnsmálin eins og áður er vikið að. Þau þykja meira að segja svo miklu varða, að á öðrum ára- tug aldarinnar var kosinn á borgarafundi sérstakur maður til að fara mcð stjórn vatnsbólanna, svo nefndur „Vandinspektör“. Fyrstur valdist til þess starfs Henrik N. Melby beykir. Eftir að bæjarstjórn tók hér til starfa árið 1836, lenti það að sjálfsögðu í hennar verkahring að ann- ast þcssi mál, og hefur sá háttur haldizt síðan. Ekki verður séð af fundargerðum bæjarstjórnar allt fram til aldamóta, að nokkru sinni hafi verið um það rætt, að lögð yrði vatnsveita um bæinn. Ekki hef ég heldur séð, að slíkt hafi verið rætt í blöðum, a. m. k. ekki þannig að það vekti nokkurn áhuga eða umræður. Vitað er þó um einn mann, sem velti þessu nokkuð fyrir sér og gerði meira að segja áætlun um vatnsveitu í Reykjavík. Þessi maður var Sigurður Guðmundsson málari. Hann hafði ver- ið við nám í Kaupmannahöfn um þær mundir, sem vatnsveita var lögð þar, þ. e. upp úr 1850. Þessar framkvæmdir hafa augljóslega vakið áhuga Sig- urðar á því að hrinda af stað vatnsveitufram- kvæmdum í Reykjavík. Frá áætlunum Sigurðar er sagt í riti K. Zimsens: „Ur bæ í borg“. Þessar hug- leiðingar Sigurðar komust ekki á almannavitorð fyrr en fyrir fáum árum, og hefðu sjálfsagt á sínum tíma verið taldar hrein skýjaglópska. Reykvíkingar höfðu því gamla lagið á og notuð- ust við brunnana, en lengst af aldarinnar voru aðal vatnsbólin þessi: brunnurinn í Aðalstræti, er áður getur, bakaríispósturinn við Bankastræti, rétt neð- an við Bankastræti 2 (Bernhöftsb.akarí) og svo Skálholtskotslind, þar sem nú er garðurinn norðan Miðbæjarskóla. Við vatnsbólin Hér myndaðist allsnemma sérstök stétt manna, er gerði sér það að atvinnu að bera vatn frá vatns- bólunum til heimilanna. Þetta voru vatnsberarnir, er hafa tryggt sér nú þegar sæmilcgan sess í bók- menntum og myndlist þjóðarinnar. Um þetta fólk má segja, að margt af því þótti einkennilegt í meira lagi, og hefur Sæfinnur með sextán skó, sem svo var kallaður, orðið einna frægastur úr starfshópi þessum, og eru af honum miklar sögur. A þessum tíma var almennur fréttaflutningur í fátæklegra lagi. Hér komu út síðari hluta aldarinn- ar, sem leið, nokkur vikublöð, sem nú þættu lítil svölun fréttaþyrstum. Blöð á borð við þau viku- blöð, sem nú þykja fréttafróð um hag náungans, þekktust þá ekki, en til útbreiðslu slíkra tíðinda reyndust vatnsbólin hin ákjósanlegustu skiptiborð. Auk þeirra, sem höfðu atvinnu af vatnsburði, hittust við vatnsbólin fulltrúar allflestra heimila í bænum, þannig að ekki var til annar vettvangur áhrifaríkari til fréttaflutnings. Oft vildi slá í brýnu við vatnspóstana, enda hefur biðraðamenning löngum átt erfitt uppdráttar á ís- landi. Varð þarna oft orðaskak, pústrar og hrind- ingar, og voru ekki íslendingar einir í þessum átökum. Annan hvítasunnudag árið 1871 sezt einn velmet- inn Reykvíkingur niður og skrifar lögreglustjóra bréf á þessa leið: „Ég lief um hríð hérna úr gluggum mínum á þessum morgni horft á franska fiskara her- taka vatnspóstinn hér í Aðalstræti, þurrpósta hann og hrifsa og fleygja vatnsfötum bæjar- manna, er þær voru bornar að króknum til að pósta í þær vatni. Milli fyllingar á hverri ámu hafa þeir hleypt bæjarmönnum að. Ég vildi því aðeins leyfa mér að spyrja, hvort búið sé að heimila og afhenda vatnspóst þennan frönskum fiskur- um, og ef svo er, hví það sé þá ekki auglýst. Sé pósturinn sem fyrr bæjarins eign og bæjar- manna, þá leyfi ég mér að segja, að ég vona, að pólitístjórnin láti ekki þetta óskiljanlega útlán á þessu aðalvatnsbóli bæjarins ganga svo langt, að það sé auðsjáanlega eyðilagt eftirlitslaust, og að þessurn útlenda skríl sé jafnframt liðið að meina bæjarmönnum vatnssóknina nema eftir hentugleikum og vel- þóknun franskra fiskara.“ Bréfritari var enginn annar en Jón Guðmunds- FRJÁLS VERZLUN 7

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.