Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1960, Side 15

Frjáls verslun - 01.12.1960, Side 15
nýir aðilar, nýir markaðir, og síldin seldist til fleiri landa. IJað var því ekki nema eðlilegt að þegnar helzta síldarneyzlulandsins hefðu liug á að taka þátt í hinu mikla kapphlaupi um Norðurlandssíld- ina, sem hófst með tilkomu herpinótarinnar 1904. Og sú staðreynd að Solbu forstjóri fékk ekki sænsk tryggingafclög til að tryggja farm og útbún- að hins fyrsta sænska síldarlciðangurs, sýnir hve Island var um þctta leyti fjarlægt og óþekkt á meðal Svía. En Norðurlandssíldin kynnti ísland þar ytra. Ilún þótti afbragðs Ijúffeng fæða á matborði Svíans, sem fór að gefa gaum þessu norðlæga og, í lians augum, mjög fjarlæga landi. Sænskir síldarkaupmenn, skipamiðlarar, fiski- menn og forvitnir ferðalangar og ævintýramenn lögðu á hafið og leituðu til Siglufjarðar á sumrin. En það var aðeins einn Svíi er reisti stóra síldar- stöð í Iandareign Siglufjarðar. Það var John Wedin frá Stokkhólmi. Hann eignaðist sjávarlóð þá, sem frumhcrjinn Mannes hinn norski hafði tekið á leigu 1903, og sem landar hans Hareide og Garshoe urðu eigendur að ári síðar en seldu svo Wedin. Lóð þessi er á austanverðri Hvanneyrinni, á milli Gránu- bryggju og Hinriksensstöðvar. Þar reisti Wedin síldarstöð og síldarhús. Síðar reisti hann snoturt íbúðarhús á brekkunni fyrir ofan eyrina, og var hús hans ýmist nefnt Wedinshús eða Wedinsvilla. Engström kallaði Wedin „sænska landnámsmann- inn á Siglufirði“, og er það réttnefni, þótt ekki ætti hann fyrstu sænsku síldarútgerðina, er þangað sótti veiðar, sbr. það sem að framan segir. Wedin var dugmikill athafnamaður og vænn höfðingi, og það var hann sem bauð nokkrum sænsk- um kunningjum sínum til Siglufjarðar sumarið 1911, en þekktastur þeirra mun hafa verið teikn- arinn og húmoristinn Albert Engström. íslandsferð á þeim dögum þótti mikið ævintýri. Engström skrifaði nokkuð um dvöl sína í þess- um norðlæga síldarbæ, er þá var í bernsku og allur hálfkaraður, en hvort það, sem úr penna hans flaut, gaf rétta og sanngjarna mynd af staðnum, skal ósagt látið, því fyrir Engström vakti fyrst og fremst að skapa húmor, sem „krassaði“ á við vel kryddaða „Islandssill“. Og samlíkingin á Siglufirði og Dawson City í Klondækhéraði var einkar hand- hæg og nærtæk. Og flest húsin í hinum hraðbyggða síldarbæ eru klædd bárujárni, „bölgeblik“, scm í augum hins sænska húmorista er skáldlegt og kát- legt í senn! En í augum okkar, hinna „innfæddu“, voru hin járnklæddu timburhús tákn þess, hve framfarirnar komu snemma í Siglufjörð. Norðmenn og Svíar fluttu óteljandi skipsfarma af timbri hingað til að byggja síldarplön, bryggjur, síldarhús og íbúðarhús, og hinir „innfæddu“ nutu góðs af. Timburhúsin þutu upp í Siglufirði, flest síðar klædd bárujárni. Þetta voru framfarir, á sama tíma og mikill hluti annarra landsmanna bjó í moldarkofum, — og svo vill til, að síðasti torfbærinn, sem reistur var í Siglufirði, var byggður þar 1911, einmitt árið sem Engström kom þangað! Og tuttugu og þrjár ölknæpur eru í síldarbænum, segir Engström, og þær allar vel sóttar af Norð- mönnum og Færeyingum í landlegum! En menn athugi, að það hefir hent margan ferða- langinn að sjá tvöfalt í Siglufirði! Ekki er heldur salt í öllum tunnum sem skipað er á land í Siglu- firði á þessum árum, vitaskuld! Og konurnar kverka og salta og slógbingirnir flæða um plönin, blóð og síldarhreistur þekur allt og alla! Og hjálpræðisherinn syngur og tárfellir í stóra samkomutjaldinu í miðri önn liins siglfirzka sumars! Og hefir nokkur fundið heita og gufumett- aða grútarlykt frá honum Goos? Á þessum tíma var Goos með bræðslu sína í stóru járnskipi úti á höfn- inni, en nokkurum árum síðar var hann búinn að ná fótfestu í landi, og þá hefði Engström haft gott af því að finna dauninn af dúkapressunni í bræðsl- unni hjá honum Sören Goos! Ferðalangurinn Engström gengur um plönin þar sem síldin berst að til löndunar. Það er sumar og sól og síld í Siglufirði! Sjórinn virðist flöskugrænn á milli síldarbryggj- anna, skvampið við staurana er þægilegt, fuglalif mikið hér við höfnina, því nóg er um æti. Brún- menguð lýsisbrák og grútarflekkir fljóta hér og þar á sjónum, og við sjávarmálið eru allir bryggju- staurar löðrandi í lýsi og grút. Sólargeislarnir lið- ast glampandi um lygnan vatnsspegil innri hafnar- innar, en utar á firðinum er hafið dimmblátt. Fjallahlíðarnar eru fagurgrænar, giljadrög og fell eru sveipuð hinni silkimjúku blámóðu síðsumars- ins, og víða teygja sig iðjagrænir rindar alla leið upp undir fjallabrúnirnar. Austan fjarðarins eru hæstu tindarnir krýndir nýföllnum snjó. Langt i suðri gnæfir Hólshyrnan, sveipuð grænni, blárri og rauðri sumarskikkju, tignarleg og heilsteypt. Höfn- in er full af norskum og sænskum skipum, það er ys og þys á sildarplönunum. Hlátrasköll stúlkn- anna við síldarstampana kveða við, högg díxil- lí'RJÁLS VERZLUN 15

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.