Frjáls verslun - 01.12.1960, Side 23
þar sem Cookssund er mjóst, nálægt Wellington.
Miklir fjallgarðar liggja eftir endilangri Suðurey.
Um miðja eyjuna eru fjöllin hrikalegust, nýsjá-
lenzku Alparnir, og þar er hæsta fjallið, Cooksfjall,
3760 m. Margir litlir jöklar eru í fjöllum þessum
og ganga sumir skriðjöklarnir allnærri byggð. Við
vesturströndina er víðast mjög lítið undirlendi, cn
breið lágslétta liggur meðfram mestallri austur-
ströndinni. Er sléttan vel fallin til jarðræktar.
Christchurch er stærst borg á Suðurey. Nafn
borgarinnar er engin tilviljun, þar sem hún er stofn-
uð af enskum trúflokki. Er hún „enskust" allra bæja
á Nýja Sjálandi, en Nýsjálendingar þykja almennt
mjög brezkir í öllum sínum háttum. í Christ-
church, sem hefur um 200 þús. íbúa, er mikill vefn-
aðariðnaður, og þaðan er flutt mikið út af land-
búnaðaráfurðum um hafnarborgina Lyttelton.
Sunnar á austurströndinni er hafnarborgin Dun-
din með 100 þús. íbúa. Þar eru skozkar venjur
mjög hafðar í heiðri.
Nýsjálendingar stunda bæði fjallgöngur og siglingcr af miklu
kappi. Myndin að ofan er írá Tasman-jöklinum, en myndin til
vinstri er tekin í höfninni í Auckland
Um % hlutar Nýsjálendinga búa í borgum, og
hefur fjögurra þeirra stærstu verið getið. Borgirnar
fara stækkandi, en þó virðist ekki mikill kraftur
í vexti þeirra, þannig er t. d. lítið byggt í við-
skiptahverfunum. Fátækrahverfi mega heita óþekkt,
en það er heldur engin reisn yfir hinum almennu
íbúðarhverfum. Á kvöldin og um helgar er mjög
lítið um að vera í borgunum, og er lista- og
skemmtanalíf fábreytt.
Almennar tryggingar eru mjög víðtækar í land-
inu og á sviði atvinnulífsins er haldið uppi háum
verndartollum til verndar ýmsum iðnaði, sem
framleiðir fyrir innanlandsmarkað. Þykir sumum
þetta hvort tveggja ganga of langt. Ókostir v.el-
ferðarríkisins eru farnir að segja til sín. Landbún-
aðurinn, með sínar 42 milljónir sauðkinda, auk
annars, er langafkastamesti atvinnuvegurinn og
byggist þjóðarauðurinn mest á honum. Vinnusam-
asta fólkið leitar yfirleitt í landbúnaðinn, enda er
dugnaði margra nýsjálenzkra bænda við brugðið.
FRJÁLS VERZLUN
23