Frjáls verslun - 01.12.1960, Síða 28
Þrjú Ijóð
eftir Jó7i bigiberg
Haust og <vor
Tjaldar á firðbláu fjalli
fyrsta vetrarnótt, —
og hvílir í laufgrænu líni,
lindanna dapra stef
seytlar til byggða
og breytir
blómi í hélurós.
Svartbrýndur dauðinn
drekkur vort líf,
daga,
mánuði,
ár.
Svelgir til dreggja
svalandi veig,
samslunginn tímanum
skál!
Tjaldar á fönnugu fjalli
fyrsta sumarnótt, —
og hvílir í hvítu líni,
kliður lindanna fer
hljóðlátt til byggða
og breytir
blágráum hdlurósum
í safarík sólþyrst blóm.
BiJzar lífsins
Líkaminn bikar, —
lífið vín,
lifrautt
ólgandi vín. —
Helltur fullur
hamingjustund,
hamingjan:
Vitund þín.
Islenzk tunga
Hljóma íslands unga
undurfagra tunga
— heiðið hetjumál —
Bjart sem bylgjufaldur,
blóðsins rammi galdur
nyrzt við Atlantsál.
Hljóma Islands unga
undurfagra tunga,
— hjartkært móðurmál -
Ljúft sem langspilsómur
lífs vors helgidómur
norrænt, sterkt sem stál.
Hljóma íslands unga
undurfagra tunga,
— skapríkt skáldamál —
Brim að bjargi stígur,
brotnar, rís og hnígur,
Ijóð frá landsins sál.
28
FRJÁLS VERZLXJN