Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 35

Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 35
sannarlega, að sjóleysið væri ekki einleikið, og þér datt hafísinn í hug, en þú vildir komast þar í land- var, sem stytzt væri á líklegustu miðin, og treystir því, að ísinn væri enn alllangt undan. Ekki varð hann var við neinn ugg eða ótta hjá skipverjum. Það var eins og þeir þættust vissir um, að ekkert þyrfti að óttast, meðan sonur þess lands, sem kennt var við ís, stæði rólegur vörð á stjórnpalli. Og rólegur sýndist Jón. Þeir voru allir undir þiljum, nema hvað Jón lét þá skiptast á um að vera hjá honum í stjórnklefanum, liafði þar einn í einu. Hann var svo við og við að senda þá eftir tei handa sér, og það sötraði hann með værðar- legri ró og var aldrei kæruleysislegri en ef hann sá skotrað til sín vafakenndu spurnarauga, þegar hæst glumdi í byrðingnum. Einn af skipverjum sagði, þá er hann kom fram úr hásetaklefanum, að það væri nú meiri djöflagangurinn, þegar ísinn væri að lemja á bógum skipsins. „0, þetta eru ekki nema kastvölur,“ svaraði Jón. ,,Það þolir nú annað eins, járnið brezka.“ En aldrei hefur Jón orðið dagsbirtunni fegnari en eftir þessa nótt. Strax og bjart var orðið, var tekið að þræða þröngar, krókóttar, en auðar lænur í átt- ina til lands. Loks rofaði í Kópanesið á stjórnborða alllangt til norðausturs, og svo var þá loks íslaus sjór fram undan. Jón lét snúa upp í vindinn og stefndi fyrir Kópa- og Hafnarnes. Þegar skipið var komið í var fram af Birnustöðum í Dýrafirði, þótt- ist hann eiga fyrir að fá sér blund. Storminn lægði næsta morgun, og þá var haldið á grumnnið út af Önundarfirði. Þar var sem sjórinn moraði af fiski. Varð að margskipta vörpunni, þeg- ar hún kom upp, þó að ekki hefði verið togað nema örstutta stund. Næstu sólarhringana var lítið sofið, enda var komið svo mikið af fiski í skipið, þegar á ný gckk í norðan ofsa, að Jón leitaði ekki í landvar, heldur ákvað að halda þegar í stað til Englands. Þá er aflinn var seldur, var ekkert af honum eldra en níu daga. Það var ánægjulegt að koma á markaðinn með slíkan fisk. Jón frétti það síðar, að ekki hefðu allir sloppið jafn vel og hann hina eftirminnilegu hafísnótt. Tveir þýzkir togarar höfðu orðið fastir í ísbreiðu á ísafjarðardjúpi, skammt undan Stigahlíð, og þeir klemmdust í sundur, beygluðust eins og þeir væru úr pjátri, og sukku síðan. En áhöfnunum tókst að draga skipsbátana yfir ísbreiðuna, unz auður sjór tók við, og svo björguðust þær á bátunum hinn skamma spöl til lands, FLÓTTI OG UPPREISN Þremenningarnir í minnsta húsinu voru írar. Þeir voru mjög samrýmdir. Þeir höfðu komizt á snoðir um, að Jón hafði verið skipstjóri, og aftur og aftur komu þeir til hans og spurðu, hvernig honum litist á veðrið. Loks tók honum að þykja þessi áhugi þeirra á tíðarfarinu dálítið undarlegur. Það var engu líkara en þeir ætluðu í langa sjóferð á litlum farkosti eða hygðust liggja einhvers staðar úti á víðavangi í tjaldi. En hann forvitnaðist samt ekk- ert um það, af hvaða rótum spurningar þeirra væru runnar. Ef til vill voru þcir komnir af bændum eða sjómönnum á Vestur-írlandi, þar sem tíð er allumhleypingasöm, og liöfðu í bernsku vanizt miklu umtali um veðurfar. Kvöld eitt bar hann þar að, sem þeir stóðu allir þrír og skyggndust til lofts. Þegar þeir urðu hans varir, virtist honum þeir verða ofurlítið kindarlegir. Þcir hvörfluðu augunum ýmist til hans eða hver á annan, og svo góndu þeir á ný út í bláinn. Ilann gerði sig líklegan til að halda á brott, en þá mælti sá, sem oftast hafði orð fyrir þeim: „Hvernig lízt þér á veðrið núna, Oddsson skip- stjóri?“ Jón staldraði við og svaraði: „Ég lield veðrið sé alveg einsýnt. Eg skil ekki í öðru en það verði sama blíðan næsta sólarhringinn, og standi bæði loft og sjór.“ „Svo þú heldur það,“ m.ælti írinn og kinkaði kolli. „Já,“ sagði Jón. „Það mætti fara á skel milli landa í nótt og á morgun.“ írinn leit snöggt og einkennilega til hans, og þó að Jóni dytti raunar ekki í hug, að neitt varhuga- vert byggi undir himingægjum og veðurforvitni þeirra félaga, varð honum þannig við. að hann hraðaði sér á brott. Húskrílið stóð mjög skammt frá húsinu, sem Jón var í, og bæði voru þau mjög stutt frá girðing- unni, litla húsið þó nær henni. Var aðeins mjór grasrimi og síðan steinlögð gata milli þess og henn- ar. Þegar kallað var í fangana til talningar morg- uninn eftir þctta samtal Jóns og tranna kom eng- inn lit úr litla húsinu. Hermennirnir kölluðu aftur, en írarnir létu ekki sjá sig. Tveir hermenn snöruð- ust þá inn. Eftir skamma stund komu þeir út og skimuðu í allar áttir. Húsið hafði reynzt mannlaust. íranna var leitað um allt hvcrfið, en þeir voru hvergi finnanlegir, og hvergi urðu séð þess merki, að gaddavírinn hefði verið klipptur í sundur eða FRJÁP.S VERZLUI} 315

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.