Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1960, Side 37

Frjáls verslun - 01.12.1960, Side 37
að renna móðurinn af öllum þorra þeirra, sem tek- ið höfðu þátt í kasthríðinni. Smátt og smátt þynnt- ist hópurinn, og loks tóku þeir, sem æstastir liöfðu verið, að luntast inn, unz þar kom, að cnginn var cftir úti og allt varð liljótt, jafnvel hljóðara en venjulega. Þegar birti og fangarnir voru kvaddir út til taln- ingar, gafst þeim heldur en ekki á að líta. Allir gluggar á þeirri hlið gistihússins, sem vissi að girð- ingunni, voru mölbrotnir, og milli þess og hennar voru hrúgur af grjóti, pottum, kötlum, steikar- pönnum, gömlum skóm og jafnvel setum af salernis- skálum — og innan girðingarinnar voru dökkir fer- hyrningar, þar sem legið höfðu götuhellur, og blökk eða visnunargul för eftir steina, sem rifnir höfðu verið upp. Þegar liðnir voru nokkrir dagar frá uppþotinu, kom hermannahópur og tók fasta nokkra af föng- unum. Hermenn þeir, sem hliðsins gættu, höfðu eitthvað fylgzt með því, minnsta kosti í byrjun uppþotsins, hverjir af föngunum voru æstastir og liófu kasthríðina, og voru allir, sem handteknir voru, úr þeirra hópi. Var farið á brott með þá og strokumennina, og sáust þeir ekki í þrjá mánuði. Þegar þeir komu aftur, fræddu þeir hina fangana á því, að þeir hefðu verið fluttir til Liverpool og settir í „það konunglega“, sem Jón var geymdur í, áður en hann var fluttur í apahúsið í Ascot. Öll blöð, sem fangarnir sáu, fluttu ýtarlegar fregn- ir — og jafnvel ýktar — af uppþotinu, og var svikalaust bent á það, hverjir háskagripir þeir fang- ar væru, sem geymdir væru í fangabúðunum í Peel, og hver nauðsyn væri að gæta þeirra sem bezt. Og mikil áherzla var á það lögð, að forustumönnum óaldarseggjanna yrði stranglega refsað. Þeir og allir þeirra félagar væru föðurlandssvikarar, sem ættu enga miskunn skilið. Nokkru seinna var þess getið í blöðunum, að nú hefði innanríkisráðuneytið ákveðið að skipta um stjórn og gæzlumenn í fangabúðunum. Ætti sextíu manna hópur æfðra, harðvítugra og fílefldra ríkis- lögreglumanna að taka við gæzlunni. Þessi hópur hefði oft komizt í hann krappann, sögðu blöðin, og væri hver maður þaulvanur að beita hvort held- ur væri kylfu, skammbyssu eða hríðskotariffli. Fregnin reyndist sönn. Herinn var kvaddur á brott, en í hans stað komu sextíu lögreglumenn. Satt var það, að þeir voru miklir vexti og sterk- legir, og cflaust hafa þeir verið vel þjálfaðir. Og ekki skorti þá vopnabúnað. En þeir reyndust ró- legir og sérlega prúðir til orðs og æðis, en lausir við allt hik og fálm, þegar á reyndi. Varð sú raunin, að öllum föngunum líkaði vel við þá. Yfirmaður þeirra hét Ogden. Jón kynntist honum ekkert, en liann var sagður gætinn maður og drenglyndur. Frá starísemi „Sölufækni” Aðalfundur félagsins Sölutækni var haldinn 19. nóvember sl. Formaðurinn, Þorvarður J. Júlíusson, flutti skýrslu stjórnarinnar, og bar hún mcð sér, að starfsemi félagsins hefur verið með miklum blóma síðastliðið starfsár. Helztu málin, sem félagið hafði fjallað um, voru: námskeið og fræðsla í sölu- og auglýsingatækni, öflun fræðslukvikmynda í þessu skyni, lög og réttarreglur um vörumerki, löggjöf um varnir gegn óréttmætum verzlunarháttum, rann- sóknir á vörudreifingu, auglýsingaþáttur í Ríkis útvarpinu, eintakaskráning blaða og tímarita, sam- vinna við systurfélögin á Norðurlöndum, undirbún- ingur stjórnarfundar Norræna sölutæknisambands- ins í sumar, kynnisferð auglýsingamanna og aug- lýsingastjóra til Bandaríkjanna, fjármál félagsins og ýmislegt flcira. Á starfsárinu hefur verið unnið að því að koma á fót eintakaskráningu blaða og tímarita. Eintaka- skráningunni er ætlað að gefa upplýsingar, með jöfnu millibili, um eintakafjölda íslenzkra blaða og tímarita, sem taka auglýsingar til birtingar. Slíkar upplýsingar eru auglýsendum að sjálfsögðu mikið nauðsynjamál. Blöðum, tímaritum og auglýsinga- skrifstofum er einnig mikilvægt að geta birt slíkar FRJÁLS VERZLUN 37

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.