Frjáls verslun - 01.11.1967, Blaðsíða 13
FR'JÁLS VERZLUN
13
Stefán Valgeirsson.
flutti heim 1956 eftir 26 ára dvöl
erlendis.
Síðan Pétur kom heim hefur
hann tekið virkan þátt í margvís-
legu félagsstarfi. Til dæmis skal
nefnt, að hann hefur átt sæti í
stjórn Hins ísl. fornritafélags frá
1959, var formaður Samtaka um
vestræna samvinnu frá 1958—
1965, formaður Stúdentafélags
Reykjavíkur frá 1959—1960 og
hefur átt sæti í stjórn Sölusam-
bands ísl. fiskframleiðenda frá
1962.
Pétur hefur alltaf haft mikinn
áhuga á íslendingasögum og forn-
ritum og hefur hann ritað töluvert
um þau mál. M. a. kom út árið
1965 rit eftir hann, er nefndist:
,,Hvers vegna orti Egill Höfuð-
lausn?“
Pétur Benediktsson er tví-
kvæntur. Fyrri kona hans var
Guðrún Eggertsdóttir Briem, óð-
alsbónda í Viðey, en síðari kona
hans er Marta Ólafsdóttir, forsæt-
isráðherra Thors.
Við Alþingiskosningarnar í sum-
ar tók Pétur Benediktsson annað
sætið á lista Sjálfstæðisflokksins
í Reykjaneskjördæmi og er 4.
þingmaður kjördæmisins. Á Al-
þingi á Pétur sæti í Neðri deild og
var þar kosinn í fjárhagsnefnd,
sjávarútvegsnefnd, heilbrigðis- og
félagsmálanefnd og enn fremur á
hann sæti í utanríkismálanefnd
Sameinaðs Alþingis.
Stefán Valgeirsson er fæddur að
Auðbrekku í Eyjafirði 20. nóv.
1918. Sem bændasona var háttur í
þann tíma fór Stefán á bænda-
skóla og nam búfræði í Hóla-
skóla á árunum 1941 og 1942 og
lauk þaðan prófi. Síðan lá leið-
in til Reykjavíkur og þar hóf
Stefán vinnu við húsbyggingar
hjá föðurbróður sínum, Hilm-
ari Árnasyni. Einnig vann Stef-
án um tíma við uppskipun o.
fl. við Reykjavíkurhöfn, en réðst
síðan til Reykjavíkurborgar, fyrst
sem verkamaður, en varð fljótlega
verkstjóri og gegndi þeim störf-
um til ársins 1948, en það ár
kvæntist hann Fjólu Guðmunds-
dóttur úr Árnessýslu. Fluttu þau
hjónin norður í Eyjafjörð, og þar
hóf Stefán búskap á Auðbrekku
með Þóri, bróður sínum.
búskap á Auðbrekku með Þóri,
bróður sínum.
1953 brá Stefán búi, þar sem
hann hafði verið heilsuveill um
nokkurn tíma og flutti þá til
Keflavíkur. Stundaði hann þarbif-
reiðaakstur og ökukennslu um
tíma, en flutti síðan aftur norð-
ur að Auðbrekku.
Stefán hafði alltaf mikinn
áhuga á félagsmálum og var hann
um skeið formaður Félags ungra
framsóknarmanna í Eyjafirði og
er nú formaður fulltrúaráðs Fram-
sóknarflokksins þar. Þá var hann
og um skeið formaður Starfs-
mannafélags Keflavíkurflugvall-
ar, bifreiðastjórafélagsins Fylkis
á Suðurnesjum og Byggingasam-
vinnufélags Keflavíkur.
Stefán Valgeirsson skipaði 3.
sæti á lista Framsóknarflokksins í
HÚS-
BYGGENDUR
Hjá okkur getið þér
fengið á einum stað
næstum allt efni í bygg-
inguna.
Góð bílastæði.
Góðfúslega kynnið yður
verð og vöruval hjá
okkur.
Það sparar yður tíma
og fyrirhöfn að verzla
þar sem vöruvalið
er mest.
Timbur, járn o. fl.
þungavörur sími 41010
Verzlunin — 41849
Skrifstofan — 40729
BYGGINGAVðRUVERZLUN
KÖPAVOGS
Kársnesbraut 2,
Kópavogi.