Frjáls verslun - 01.11.1967, Blaðsíða 37
FRJÁLS VERZLUN
37
nógu duglegt, og þá jafnvel gerst
meðeigendur með því að kaupa
hlutabréf. Ég er alls ekki viss um,
að þetta sé óheppilegra. Aftur á
móti, ef einhver kemur með nýja
uppfinningu, eða eitthvað nýtt,
sem væri mjög gróðavænlegt, opn-
ast honum allar dyr.
Nú eru margir íslendingar
óánægðir með það, að Loftleiðir
h.f. skuli ekki fá að auka flug til
hinna Norðurlandanna, ekki sízí
vegna þess, að á íímabilinu 1960
—1966 var vöruskiptajöfnuður ís-
lands við þau óhagstæður um
2900 milljónir króna, og aukið
flug gæti hjálpað til viðaðminnka
þennan mun. Það hafa jafnvel
verið uppi raddir um það, að
minnka viðskiptin, og láta t. d.
smíða fiskibáta annars staðar en í
Noregi. — Hafa þessi mál verið
rædd meðal verzlunarmanna í
hinum Norðurlöndunum?
Það held ég ekki, mér er
a. m, k. ekki kunnugt um það.
Þess ber að gæta, að þetta er mál,
sem ríkisstjórnir landanna hafa
haft til meðferðar, og það hefur
ekki komið til þess, að við gripum
fram í fyrir þeim eða hefðum af-
skipti af málinu.
Ef við snúum okkur að öðru,
livernig er með Iánastofnanir í
Svíþjóð og hvernig gengur fyrir-
tækjum að fá lán í bönkum?
Það er ekki erfitt. Það var
dáiítið slæmt ástand í þessummál-
um fyrir nokkrum árum, en það
er nú alit komið í lag, og ef menn
geta sýnt einhverja tryggingu fyr-
ir því, að fénu sé vel varið, er
mjög auðvelt að fá fyrirgreiðslu.
Og hver er afstaða ykkar til
erlends fjármagns?
Ég held, að Svíar séu allra
manna frjálslyndastir í þeim efn-
um. Ef við getum sjálfir grætt á
aðstöðu erlendra fyrirtækja í okk-
ar landi, sjáum við ekkert því til
fyrirstöðu að veita þeim hana. Við
erum líka nokkuð vel „varðir“,
því að vinnulaun í Svíþjóð eru
það há, að menn leggja ekki út í
að setja þar upp fyrirtæki eða úti-
bú fyrirtækja, nema það getiborg-
að sig mjög vel. Og ef það borgar
sig, þá geta allir verið ánægðir.
LAIMOSBAIMKI ISLAIMDS
AUSTURSTRÆTI II — REYKJAVÍK — SÍMI 17780
OTIBU í REYKIAVÍK:
AUSTURBÆJARÚTIBÚ, Laugavegi 77, sími 21300.
LANGHOLTSÚTIBÚ, Langholtsvegi 43, simi 38030.
MÚLAÚTIBÚ, Lágmúla 9, Simi 83300.
VEGAMÓTAÚTIBÚ, Laugavegi 15, sími 12258.
VESTURBÆJARÚTIBÚ, Háskólabíói v/Hagatorg, sími 11624.
ÚTIBU UTI A LANDI:
Akranesi
Akureyri
Eskifirði
Grindavík
Húsavík
Hvolsvelli
ísafirði
Sandgerði
Selfossi
AFGREIÐSLUR:
Keflavík
Raufarhöfn
Þorlákshöfn
Annast öll venjuleg bankaviðskipti innanlands og utan
TIL ÁSKRIFENDA
FRJÁLS VERZLUN sendir um þessar mundir út póstávís-
anir til innheimtu áskriftagjalda. Er hœgt að greiða þessar
póstávísanir á hvaða pósthúsi, sem er, og eru áskrifendur
vinsamlega beðnir um að gera skil sem fyrst.
Áskriftargjald Frjálsrar verzlunar er greitt tvisvar á ári
og er 390,00 krónur hvort tímabil.
Einnig eru áskrifendur vinsamlega beðnir að tilkynna
breytingar á heimilisfangi með nokkrum fyrirvara, þannig að
þeir fái blaðið skilvíslega sent.
FRJALE3
VIERZLLJIM
Óðinsgötu 4,
sími 82300—02,
box 1193.