Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1967, Blaðsíða 52

Frjáls verslun - 01.11.1967, Blaðsíða 52
52 FFfjALB VERZLUN Kæliskápar Frystiskápar Frystikistur Kæliborð Frystivélar Einkaumboð á íslandi AKURFELL SF. Skipholti 5, sími 24966 Póstbox 602 Styrktar- og sjúkrasjóður verzlunarmanna í Reykjavík IGO ára Hinn 24. nóvember s.l. var lið- in ein öld frá stofnun eins elzta fé- lagsskapar hér á landi, sem enn er starfandi, en það er Styrktar-og sjúkrasjóður verzlunarmanna í Reykjavík. Vegna þessa merka af- mælis var gefið út heimildarrit um sögu og starfsemi sjóðsins í 100 ár. Hafa allir núverandi félags- menn fengið rit þetta sent, en einnig er það til sölu í bókaverzl- unum. Afmælisrit þetta hefst á sögu sjóðsins og starfsemi hans fyrstu 50 árin, eftir Ólaf Björnsson, rit- stjóra, sem gefin var út á hálfrar aldar afmæli sjóðsins árið 1917. Þetta rit er nú fyrir löngu orðið ófáanlegt, en með því að þar eru rakin ítarlega helztu atriðin er að stofnun sjóðsins lúta, og starfsem- inni fram að þeim tíma, þótti stjórn sjóðsins rétt að láta þetta afmælisrit hefjast á því. Árið 1942, er sjóðurinn varð 75 ára, gaf þáverandi stjórn sjóðsins út afmælisrit, er Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarpsstjóri, samdi, er jafnframt var „Þáttur úr verzlun- arsögu“, þar sem gefin var glögg mynd af því hvernig umhorfs var í Reykjavík um það leyti, sem sjóðurinn var stofnaður og nokk- uð fram á þessa öld. Þetta rit er einnig orðið fágætt, og eykur á gildi þessa afmælisrits, svo að það er nú birt á ný í því. Lokaþáttinn í afmælisritinu, er nefnist „hagur sjóðsins í hundr- að ár“, hefur Eggert P.Briem, full- trúi, tekið saman. Eru þar birtar ýmsar tölur úr reikningum sjóðs- ins í 100 ár, ásamt stjórnendatali og endurskoðenda, svo og félaga- tal frá árinu 1867 til þessa dags. Fundargerðabækur sjóðsins og all- ar sjóðbækur hafa varðveitzt fram á þennan dag, og eru skýrslur og skrár þessar unnar upp úr þeim. — ° — í afmælisritinu er, eins og áður segir, gerð ítarleg grein fyrir stofnun þessa félagsskapar. Kaup- menn og verzlunarstjórar í Reykja- vík, sem allflestir voru þá danskir eða dansk-ættaðir, höfðu með sér félagsskap, sem aðallega var eins- konar skemmtiklúbbur og nefnd- ist „Handelsforeningen“. Innanvé- banda þessa félagsskapar var „Styrktar- og sjúkrasjóður verzl- unarsamkundunnar í Reykjavík“, en svo nefndist sjóðurinn fyrstu árin, en síðar var nafni hans breytt í það, sem hann hefur verið nefndur síðan, enda þótt félags- skapurinn næði einnig til verzlun- armanna búsettra í Hafnarfirði, Keflavík, Akranesi og Búðum. Ekki er vitað með vissu, hver hefur verið aðalhvatamaður að stofnun styrktarsjóðsins, en lík- legast er talið, að það hafi verið H. Th. Thomsen, kaupmaður, eig- andi „Thomsens Magasin“, en margir eldri Reykvíkingar muna vel eftir þeirri verzlun, sem þá var hin stærsta í Reykjavík, og þar með á öllu landinu, en verzl- unin lagðist niður snemma í fyrri heimsstyrjöldinni. Þótt Thomsen væri þá einna yngstur af stofnend- um sjóðsins, eða 33 ára, var hann kosinn fyrsti formaður hans, og hélt því starfi þangað til hann fluttist af landi burt til Kaup- mannahafnar árið 1871. Fyrstu stjórn sjóðsins skipuðu með honum, þeir Hannes St. John- sen, kaupmaður (sonur Steingríms Jónssonar, biskups) og Hans A. Sivertsen, verzlunarstjóri, (sonar- sonur Bjarna riddara Sivertsen). Alls voru stofnendur 18, en auk þeirra gengu allflestir kaupmenn og verzlunarmenn í Reykjavík í þennan félagsskap þegar á fyrsta starfsári hans, auk 8 úr Hafnar- firði og 8 úr Keflavík, þannig að í lok fyrsta starfsársins voru fé- lagsmenn orðnir 63. íbúar Reykja- víkur voru þá alls tæplega 1800 manns, en kaupmenn og verzlun- armenn töldust 43. Fundargerðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.