Frjáls verslun - 01.11.1967, Blaðsíða 53
FRJÁLS VERZLUN
53
Sljórn Styrktar- og sjúkrasjóðs verzlunarmanna í Reykjavík. Sitjandi frá vinstri: Guðmund-
ur Sigurðsson, ritari; Gunnar Magnússon, formaður; Dagur Sv. Jónsson, gjaldkeri. Stand-
andi, talið frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson, meðstjórnandi og Geir U. Fenger, með-
stjórnandi.
og aðrar bækur félagsins eru rit-
aðar á dönsku fyrstu 12 starfsár-
in, og liklegt er, að umræður á
fundum hafi einnig farið fram á
dönsku fyrst framan af. (Á kápu
afmælisritsins er prentuð mynd af
fyrstu opnunni úr fundargerða-
bók sjóðsins, þar sem einnig sjást
eiginhandarundirskriftir allra
stofnenda sjóðsins undir fyrstu
lög hans). Á aðalfundi 1879 er
fundargerð fyrst rituð á íslenzku,
og lögum félagsins jafnframt snú-
ið á íslenzku.
Styrktar- ogsjúkrasjóðurinnhef-
ur alltaf verið fremur fámennur
félagsskapur, og komst félagatal-
an ekki yfir 100 fyrr en árið 1902,
eða 35 árum eftir stofnun hans.
Alls hafa 1104 menn gengið í fé-
lagið á þessum 100 árum, en nú
eru félagsmenn 426, sem ekki get-
ur talizt mikið, miðað við fjölda
verzlunarmanna í borginni. Með
stofnun sjúkrasamlaga og al-
mannatrygginga ríkisins, ásamt
lífeyrissjóðum hins opinbera, ým-
issa stétta og fyrirtækja, hefur
þörfin fyrir starfsemi einstakva
styrktarsjóða orðið minni, og að
sjálfsögðu hefur það orsakaðminni
fjölgun í sjóðnum en ella hefði
mátt búast við.
Eins og nafn sjóðsins ber með
sér, hefur það ávallt verið aðal-
tilgangur hans og í rauninni eini
tilgangur, að styrkja þurfandi
verzlunarmenn, ekkjur beirra og
börn. Styrkir, sem veittir haía
verið fyrr á árum, virðast ekki há-
ir að krónutölu miðað við núver-
andi verðgildi peninga, en allt
fram að fyrri heimsstyrjöldinm,
hafa þeir áreiðanlega verið þeim,
ssm styrkina hlutu, mikilsverð
hjálp. Styrkur, sem gat numið
allt að 200 kr. á einstakling, hefur
samsvarað 4—5 mánaða launum
verzlunarmanna þá, og þætti það
ekki óverulegur styrkur, ef sjóð-
urinn gæti nú veitt hverjum um-
sækjanda 40 til 50 þúsund krónur
sem árlegan styrk. En auðvitað er
langt frá því, að það sé mögulegt
nú hin síðari árin. Gegnir það
furðu, að ekki fjölmennari félags-
skapur hafi þó getað veitt slíka
styrki, er oft námu samtals hærri
upphæð en árstillag félagsmanna.
Alls hafa styrkveitingar á þessum
100 árum orðið 1279, samtals að
fjárhæð rúmlega 965 þúsund krón-
ur.
Tillög félagsmanna hafa numið
alls tæpum 836 þúsundk rónum á
100 árum, vaxtatekjur sjóðsins
hafa samtals orðið rúmlega 1.400
þúsund krónur, og nema eignir
sjóðsins um síðustu áramót kr.
1.283.136.12.
Núverandi stjórn Styrktar- og
sjúkrasjóðsins skipa þeir Gunnar
Magnússon, skrifstofustjóri, for-
maður, Dagur S. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri, gjaldkeri, Guð-
mundur Sigurðsson, bankabókari,
ritari, og meðstjórnendur eru
Guðmundur Guðmundsson, for-
stjóri, og Geir Fenger, verzlunar-
maður.