Frjáls verslun - 01.11.1967, Blaðsíða 46
46
FFÍJÁLS VERZLUN
fjölgað liði sínu meir. Loftárás-
irnar á N.-Vietnam bindi ógrynni
manns (áætlað hálf milljón) við
varnir og viðgerðir heima fyrir,
lið, sem annars mætti senda í
stríðið sunnan megin landamær-
anna.
AUKNAR
SÓKNARAÐGERÐIR.
Megintilgangurinn með fjölgun-
inni er að hefja nýjar sóknarlotur
í líkingu við aðgerðirnar fyrir
rúmu ári. Liðsstyrkurinn er í sam-
ræmi við tilganginn. Hersveitirn-
ar eru sérstaklega ætlaðar til
sóknar, en ekki varnar eða varð-
gæzlu.
Hinar geysistóru herbækistöðv-
ar, birgðastöðvar og flugvellir eru
að mestu leyti fullgerðar, og reynt
verður að fá borgara frá löndum
bandamanna til ýmissa sérfræði-
starfa, sem hermenn gegna nú.
Allt kemur þetta til með að örva
sóknargetuna.
Bandaríkjamenn hafa ekki get-
að haldið uppi sóknaraðgerðum
um nokkurt skeið. Ástæðan er
fjölgunin í liði andstæðinganna,
sem áður er getið. Þá er mikill
fjöldi hermanna (einkum land-
gönguliða) bundinn við hlutlausa
beltið á landamærum S.-Vietnam.
Þeir reyna að koma í veg fyrir
vopna- og liðsflutningana að norð-
Ekki er vitað með vissu, hvernig veggurinn við landa mæri S.-Víetnam á að vera í smáatriðum. Teikning-
in gefur þó til kynna nokkur atriði í samsetningu hans. Kostnaður er áætlaður 50 milljón dala.
Vísað til talnanna í myndinni:
1. Rafeindatæki, sem greina menn í myrkri.
2. Langdrægur radar, sem greinir menn.
3. Skjálftamælir, er sýnir hreyfingu á yfirborði jarð-
ar.
4. Segulmælir. Á honum kæmi fram vopnabúnaður.
5. Tæki, er sendir frá sér infra-rauða geisla og grein-
ir menn frá dýrum.
6. Hljóðmagnarar.
7. Rafeinda-„augu“ er senda frá sér stöðuga geisla.
8. Viðvörunartæki gegn jarðgöngum.
9. Fíngert vírnet, grafið í jörðu, í sambandi við að-
vörunartæki.
10. Sprengjum, sem springa við minnstu viðkomu,
dreift úr flugvél yfir svæðið.
11. Fljúgandi „þefarar“, sem greina efnin í svita
manns.
12. Herlið rciðubúið til atlögu. Bæði stórskotalið og
sveitir fluttar í þyrlum.