Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1967, Page 20

Frjáls verslun - 01.11.1967, Page 20
20 FFfJÁLS VERZLUN RONSON gull RONSON stál R O N S O N marmari RONSON kristall R O N S O N keramik RONSON teak R O N S O N palisander RONSON á borðiS RONSON í vasann vi3 höfum allt sem RONSON framleiSir 78 ÓBAKSVEZZLUN ÖÁAA.SAR- LAUGAVE6! 62 - SÍM/ 13726 - ar þeirrar, sem nú hefur verið ákveðin, er að skapa bætt skil- yrði til framleiðsluaukningar og verðmætasköpunar, en til þess að honum verði náð, er nauðsynlegt að framkvæma ýmsar hliðarráð- stafanir, er tryggi grundvöli hins nýja gengis og komi í veg fyrir óeðlilega efnahagslega röskun. At- burði þá, sem að dómi Seðlabank- ans hafa gert þessa gengisbreyt- ingu óumflýjanlega, bar brátt að, og hefur tími til ákvarðana verið svo stuttur, að ekki hefur reynzt kleift að kanna til fulls, hverra að- gerða væri þörf í þessu efni. Eru mál þessi nú til gaumgæfilegrar athugunar, en Seðlabankinn vill þó þegar á þessu stigi taka fram eftirfarandi, er hann telur miklu skipta: í fyrsta lagi er á það að benda, að afkoma ýmissa greina sjávar- útvegsins er mjög mismunandi, og hefur því við gengisbreytinguna fyrst og fremst orðið að hafa hlið- sjón af meðalafkomu atvinnuveg- arinsins í heild, en ekki af þeim rekstri, sem sýnir beztu afkomu, né heldur þeim, sem verst erstadd- ur. Af þessu leiðir, að nauðsynleg- ar verða ráðstafanir til tekjuöfl- unar innan sjávarútvegsins, svo og aðgerðir, er miði að endur- skipulagningu og endurbótum þess hluta fiskiðnaðarins, semhaft hefur lakasta afkomu að undan- förnu. Jafnframt er nauðsynlegt, að þetta tækifæri sé notað til þess að koma á öflugum verðjöfnunar- sjóðifiskiðnaðarins, er geti í fram- tíðinni að nokkru leyti varið bæði sjávarútveginn sjálfan og þjóðfé- lagið í heild gegn áhrifum sams konar verðsveiflna erlendis og átt hafa sér stað undanfarið. í öðru lagi er það meginskilyrði þess, að gengisbreytingin geti haft þau áhrif, sem til er ætlazt og leiðrétt það misræmi, sem mynd- azt hefur í þjóðarbúskap ísiend- inga að undanförnu, að tryggt sé, að ávinningur hennar eyðist ekki upp að nýju í hækkunum inn- lends verðlags og kostnaðar. Hér verður að hafa í huga, að óhjá- kvæmilegt er að leiðrétta þann heildarhalla, sem myndazt hefur í þjóðarbúskapnum vegna tekju- rýrnunar undanfarins árs, með því að samræmt sé að nýju neyzla og fjárfesting annars vegar og raunverulegar þjóðartekjur hins vegar. Seðlabankinn telur einnig sérstaka ástæðu til að benda á það, í þessu sambandi, að hinir háu tollar, sem greiða verður af mörgum vöruflokkum hér á landi, hafa í för með sér misræmi í verð- lagi, sem tækifæri er til að leið- rétta, þegar gengisbreyting á sér stað. Er nauðsynlegt að endur- skoðun tolia með þetta fyrir aug- um verði framkvæmd sem allra fyrst. Að lokum vill Seðlabankinn lýsa þeirri von sinni, að takast megi að halda svo á málum, að ekki eigi sér stað, vegna gengis- breytingarinnar rýrnun á verð- gildi peninga umfram það, sem óumflýjanlegt er. Jafnframt mun hann hefja að nýju viðræður við viðskiptabankana um leiðir til þess að taka sem fyrst upp verð- tryggingu sparifjár á grundvelli löggjafar, sem fyrir hendi er um það efni. ATHUGASEMD í grein um sjónvarpsauglýsing- ar, sem birtist í síðasta tölublaði, var vitnað til orða GíslaB. Björns- sonar auglýsingateiknara. Við Gísla var hins vegar aldrei talað, heldur við Sigurjón Jóhannsson, sem starfar hjá Auglýsingastof- unni Gísli B. Björnsson h.f. Eru hlutaðeigandi beðnir afsök- unar á þessum mistökum. > ' Afengis- og tóbaksvcrzlun ríkisins Skrifstofur: Borgartúni 7, sími 24280 Afgreiðslutími frá kl. 9-12.30 og 13-16, nema laugardaga kl. 9-12 og mánudaga kl. 9-12.30 og 13-17.30

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.