Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1967, Side 36

Frjáls verslun - 01.11.1967, Side 36
36 FRJALS VERZLUNI Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Umsjón: Magnús L. Sveinsson Erfitt fyrir ungt fólk að stofna fyrirtæki í Svíþjóð Rabbað vi3 Erik Magnusson, fyrrv. form. Norrœna verzlunarmannasambandsins, sem hélt hér fyrirlestur í boði V.R. Verzlunarmannafélag Reykja- víkur hefur að undanförnu geng- izt fyrir hádegisverðarfundumfyr- ir félagsfólk og gesti, um helztu verzlunar-, viðskipta- og þjónustu- fyrirtæki, sem verzlunar- og skrif- stofufólk starfar við, og jafnframt hefur verið um að ræða kynningu á viðkomandi starfsgreinum og því, sem þar er efst á baugi. Eru þessir fundir hugsaðir sem liður í aukinni kynningu á þýðingu og mikilvægi þeirra atvinnugreina og starfa, sem innt eru af hendi í þeim. Fundir þessir verða sjö tals- ins og hinn síðasti haldinn laugar- daginn 2. marz. Það eru kunnir menn, sem flytja aðalræðurnar á þessum fundum, og allir sérfræð- ingar á sínu sviði. Blaðafulltrúarn- ir Sigurður Magnússon og Sveinn Sæmundsson fjalla um flugmál, Erlendur Einarsson forstjóri um samvinnuhreyfinguna, Gunnar Guðjónsson forstjóri um útflutn- ingsverzlun, Hannibal Valdimars- son um íslenzka verkalýðshreyf- ingu og Óttarr Möller forstjóri um siglingar. Auk þess bauð svo V.R, hingað til lands Erik Magnusson, fyrrver- andi form. Norræna verzlunar- mannasambandsins, og laugardag- inn 11. nóvember s.l. flutti hann erindi um þróun hagsmunabaráttu skrifstofu- og verzlunarfólks á Norðurlöndum. V.R.-síðan hitti Erik að máli, meðan á heimsókn hans stóð og rabbaði lítillega við hann um sam- bandið og aðstöðu verzlunarfólks á hinum Norðurlöndunum. Hver er tilgangur sambands- ins, hversu miikil völd liefur það og hvað eru félagar margir? Það má segja, að þetta sé nokkurs konar vináttusamband. Við komum saman til funda, ber- um saman bækur okkar og hjálp- um hver öðrum eftir föngum. Fé- lagar eru um 300 þús. manns, svo að þetta eru nokkuð sterk samtök, sem sjálfsagt gætu komið ýmsu til leiðar, en við höldum okkur innan vissra takmarka, skiptum okkur t. d. ekki af stjórnmálum, en reyn- um að gæta hagsmuna hver ann- ars, eins og unnt er. Gagnsemi samtakanna hefur orðið augljós í gegnum árin og þau hafa komið miklu til leiðar, t. d. í sambandi við tryggingar, lífeyri og fleira þess háttar. Við höfum alltafreynt að eiga gott samstarf við stjórnar- völd landa okkar, og það hefur gengið vel, aldrei komið til alvar- legra árekstra. Hvernig er menntun verzlun- ar- og skrifstofufólks í Svíbjóð? Ég held mér sé óhætt að full- yrða, að hún sé á nokkuð háu stigi. Það er augljóslega fyrirtækj- unum í hag, að starfsfólk þeirra sé vel menntað og hæft í sínu starfi, og ungu fólki er auðvelt að öðlast þá menntun, sem það ósk- ar sér, ef það er reiðubúið að leggja eitthvað á sig. Hversu fljótt getur það haf- ið störf? Erik Magnusson. Ekki fyrr en það er komið yfir tvítugt, þ.e.a.s. piltarnir. Skyldunámi er ekki lokið, fyrr en þeir eru orðnir 18 ára gamlir, og þá eiga þeir eftir að gegna her- þjónustu og ljúka framhaldsnámi. Herþjónustan gerir þarna nokk- urt strik í reikninginn, en hins vegar getur hún orðið þeim til góðs að öðru leyti, bæði verið þroskandi og eins, ef þeir eru heppnir, veitt þeim raunhæfa þjálfun í einhverju, sem þeir óska eftir að leggja fyrir sig. Það þarf t. d. ekkert smáræðis skrifstofu- bákn til þess að sjá fyrir öllum þörfum hersins. En hvaða aðstöðu hefur ungt fólk til að setja á fót elgin fyrir- tæki. Þá syrtir heldur í álinn. Ég er hræddur um, að það sé mjög erfitt, jafnvel ógerlegt, ef viðkom- andi hefur ekki því meira fjár- magn að baki sér. Það eru stóru fyrirtækin sem „bliva“, og það er reynt að gæta þess, að þau fái ekki samkeppni, sem gæti verið þeim óheppileg; aðhaldið er alveg nógu mikið vegna annarra stór- fyrirtækja, sem eru með sömu eða svipaðar framleiðsluvörur. Það er því reynt að hafa stjórn á þessu með tilliti til markaðanna. Hins vegar getur ungt fólk unnið sig upp í háar stöður, ef það er

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.