Frjáls verslun - 01.11.1967, Síða 42
42
FRJÁLS VERZLUN
IÐNAÐUR
FJÖLIÐJAN HF.
Frá VestfjörSum
til Suðurlands
Fjöliðjan h.f. á ísafirði var stofn-
uð árið 1961 og hefur verið í stöð-
ugum vexti síðan, svo að það kom
fljótlega að því, að forráðamenn
hennar færu að hugsa um stækk-
un. Það var talið heppilegra að
hafa nýju verksmiðjuna einhvers
staðar annars staðar en á Isafirði,
og eftir nokkra íhugun varð Hella
á Rangárvöllum fyrir valinu.
Fyrst í stað mun verksmiðjan þar
framleiða einangrunargler, eins
og sú á ísafirði, en síðar hefst svo
einnig framleiðsla á öryggisgleri,
sem er nýr þáttur í iðnaði á ís-
landi.
Lyftistöng. Ingvar S. Ingvars-
son, einn af stjórnendum verk-
smiðjunnar, sagði Frjálsri verzlun
að staðsetning verksmiðjunnar á
Hellu væri báðum aðilum hag-
kvæm. Það væri vissulega lyfti-
stöng fyrir Hellu að fá blómlegt
iðnfyrirtæki í bæinn, án nokkurs
tilkostnaðar, og jafnframt hefðu
Fjöliðjunni verið boðin hagstæð
kjör og aðstaða í bænum. Ingvar
sagði, að það hlyti að teljast æski-
leg þróun, að iðnaðurinn dreifðist
um landið og að verksmiðjurnar
hrúguðust ekki allar upp í þétt-
býlinu.
Aðalmarkaður Fjöliðjunnar er
í Reykjavík, og að sjálfsögðu hefði
verið hægt að fá lóð þar undii
verksmiðju, en hins vegar er ekki
langt þangað frá Hellu og sam-
göngur svo góðar, að þær ættu
ekki að valda neinum erfiðleikum.
Hella er líka tiltölulega þéttbýlt
svæði, og íbúarnir þar ættu að
geta tryggt verksmiðjunni nokkuð
stöðugt vinnuafl, sem er öllum
iðnfyrirtækjum nauðsynlegt.
Sem fyrr segir, hefst nýr þátt-
ur í íslenzkum iðnaði, þegar verk-
smiðjan á Hellu byrjar að fram-
leiða öryggisgler. Það verður fram-
Unglingar að störfum í verksmiðjunni á ísafirði.
leitt fyrir bifreiðar, til innrétt-
inga, í verzlanaglugga og yfirleitt
til allra hluta, sem það er nytsam-
legt. Og eftir því, sem Ingvar seg-
ir, ætti það að vera töluvert ódýr-
ara en innflutt öryggisgler. Hvað
verðlag snerti, hefði innlendur
gleriðnaður raunar sparað hús-
byggjendum milljónir króna, og
má benda á í því sambandi, að
fyrir sex eða sjö árum var kostn-
aður við gler talinn vera um 3%
af byggingarkostnaði, en nú er
hann talinn vera um 1%. Þetta
væri enn unnt að lækka, ef hægt
væri að staðla glervöru, sem til
húsbygginga þarf, og gæti það
munað töluverðum fjárhæðum.
Því miður er ekki útlit fyrir, að
svo verði á næstunni, því að það
er búið að berjast við það í vel
rúman áratug að koma á einhverri
stöðlun í byggingaiðnaðinum, en
án sýnilegs árangurs.
Fjöliðjan leggur mikla áherzlu
á vandaða og góða framleiðslu og
SECURE-einangrunarglerið er að-
eins framleitt úr austur-þýzku
rúðugleri af „A“-gæðaflokki, sem
sérstaklega er valið til framleiðsl-
unnar. Það er einnig fáanlegt úr
slípuðu gleri, sandblásnu, hömr-
uðu eða vírinnlögðu. Það er einn-
ig framleitt bogadregið, sporöskju-
lagað eða í stuttu máli: alveg eins
og kaupandinn vill hafa það.