Frjáls verslun - 01.11.1967, Qupperneq 54
54
FrfjÁLS VERZLUN
BLÖÐ — BÆKUR
lceland 1966
Handbók á ensku um
ísland
SEÐLABANKI ÍSLANDS gaf
fyrir nokkru út myndarlega hand-
bók um fsland, Iceland 1966, og
er þar um framhald að ræða á út-
gáfu handbókar þeirrar um ís-
land, sem Landsbanki íslands gaf
út á árunum 1926 til 1946. Er
þessi nýja bók því 5. útgáfan í
sinni röð. Hún er rituð á ensku og
er því mikilsverð heimild fyrir út-
lendinga um ísland.
Efni bókarinnar hefur að sjálf-
sögðu verið endurskrifað að mestu
eða öllu leyti. Bókin skiptist í 11
kafla, þar sem fjallað er um: land
og þjóð, sögu og bókmenntir,
stjórnarskrá og stjórnmál, sam-
bönd við erlend ríki, iðnað, verzl-
un og samgöngur, efnahagsmálin,
þjóðfélagshætti, trú og menntun,
vísindi og listir og í síðasta kafl-
anum er sagt frá fjölmiðlunar-
tækjum, íþróttum og tómstunda-
starfi landsmanna. Þá tekur við
skrá yfir opinberar stofnanir,
banka, ýmis fyrirtæki og stéttar-
sambönd. Einnig eru í bókinni
skrár um sendiráð og ræðismenn
íslands erlendis og bækur á er-
lendum málum um íslenzk efni.
Aftast í bókinni er svo atriðaskrá.
Iceland 1966 er 390 bls. að
stærð, smekklega prentuð á góð-
an pappír. Nokkrar litmyndir
prýða bókina.
Svo sem sjá má af framantöldu,
er hér um mjög nytsama handbók
að ræða, enda eru höfundar les-
málsins allir þjóðkunnir menn
fyrir störf sín á ýmsum sviðum.
Er ekki að efa að „Iceland 1966“
mun koma að góðu gagni sem
sannverðug heimild um íslenzk
málefni þessa tíma.
AUTUMN 1967
65°
ÁRSF J ÓRÐUN GSRITIÐ 65°,
The Reader’s Quarterly on Con-
temporary Icelandic Life and
Thought, hóf göngu sína fyrir
nokkru. Tilkoma nýs rits í ís-
lenzkan blaðakost hlýtur ávallt að
vekja nokkra eftirtekt, ekki hvað
sízt, þegar ritið er gefið út á enska
tungu sem þetta. Ritstjóri og út-
gefandi 65° er Amalía Líndal.
„Þegar ég var að leggja út í
þetta,“ sagði Amalía, „var mér
sagt, að þrennt þyrfti til að út-
gáfan tækist: heiðariegan fram-
kvæmdastjóra, peninga og mark-
að. Ég varð mér út um fram-
kvæmdastjórann og peningana og
spurningin um markaðinn lofar
góðu. Hvers vegna ég byrjaði á
þessu? Af athafnaþrá. Allir
verða að finna verksvið við sitt
hæfi og þetta varð útkoman hjá
mér. Ég hef stundað nokkuð skrift-
ir á ensku, og þegar ég fann, að
hér var grundvöllur fyrir útgáfu
rits á ensku, ákvað ég að gefa það
út á því máli.
Ég held ég megi fullyrða, að 65°
hafi hlotið góðar viðtökur hér á
landi. Einnig sendi ég það til Kan-
ada og Bandaríkjanna, en ég er
ekki farin að heyra þaðan enn
þá.“
Fyrsta tölublað 65° er 35 les-
málssíður. Engar auglýsingar eru
í þessu tölublaði, en koma til með
að vera framvegis. Nafnið dregur
tímaritið af 65. breiddarbaugnum,
sem liggur þvert yfir ísland, og
skiptir því nokkurn veginn.
AUGLÝSENDUR, LÁTID OKKUR
GERA AUGLÝSINGAMÓTIN
FYRIR YÐUR
MYNDAMÓT hf.
PREMTMVNDACERB - AÐALSTRÆTI 6 - REYKJAVÍK - SÍMI 17152