Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1967, Blaðsíða 57

Frjáls verslun - 01.11.1967, Blaðsíða 57
FRJAL5 VERZLUN 57 slíka ráðleggingarstarfsemi stund- ar, og annast einnig þrekmæling- ar, er Jón Ásgeirssonfysioterpeut, sem starfrækir gufubaðstofu og nuddstofu í Bændahöllinni, eins og mörgum er kunnugt. Hann hef- ur einnig stundað þrekmælingar og ráðgefandi starfsemi fyrir þá, sem þjást af ýmsum líkamskvill- um, t. d. vegna skorts eða rangrar notkunar þreks. Hefur hann í því skyni kynnt sér ýmislegt er varð- ar vinnutækni og vinnustellingar. Jón segir, að menn, sem til þekkja, efist ekki lengur um. gildi þrekmælinga. Hins vegar bendir hann á, að einstök mæling líkamsástands einstaklings sé ekki einhlít sönnun, hvorki fyrir getu né getuleysi viðkomandi manns eða konu. Hafi ýmislegt þar áhrif á, svo sem meðfæddir eiginleikar, þjálfun og sitthvað fleira. Einstök mæling gefur á hinn bóginn all- góða hugmynd um þrek og þrek- eyðslu þeirra, sem mældir eru. Eru þessar mælingar gerðar á þar til gerðu hjóli. Einstaklingur sá, sem í prófið fer, er látinn hjóla tiltekinn tíma og mótstaða hjólsins stillt á visst stig. Til dæmis er mótstaðan 300 metrar á mínútu sett á mann, sem hjólar 50 hringi á mínútu, þar sem hjólið snýst sex metra í ein- um hring, miðað við ákveðinn punkt á felgu þess. Fyrstu 3—4 mínútur þrekmælingarinnar eykst hraði hjartsláttarins stöðugt, en verður jafnari eftir 5—6 mínútur. Þá er að athuga, hve langan tíma það tekur hjartað að slá 30 slög, og sá tími lengist því meira, sem þrekið er betra. Þetta gefur nokkra vísbendingu. Betra er þó að taka tillit til þyngdar þess, sem mældur er, og aldurs hans, og má þá með einföldum útreikningum gera sér grein fyrir því, hversu þrekinu er háttað, miðað við það, sem það þyrfti að vera. Lítil þekking. Flestir hafa litla þekkingu á gildi þrekmælinga og huga of lítið að þreki sínu. Stutt- ar gönguferðir, smávinna utan húss eða innan, er engan veginn fullnægjandi til viðhalds á nauð- synlegu þreki. Meira þarf að koma til. Verður það augljósara, þegar haft er í huga, hvað það er raun- verulega margt, sem léttir störf nútímamannsins og dregur úr áreynslu hans við það að komast leiðar sinnar, t. d. lyftur, raf- knúnir stigar og síðast en ekki sízt sjálf bifreiðin. Vegna þessa áreynzluleysis hefur farið að bera á margs kyns sjúkdómum, sem áður voru óþekktir. „Stress“. Margir þjást daglega af því, sem nefnt hefur verio ,,stress“, og kemur fram í þreytu, vanlíðan, minnkandi afkastagetu og þoli. Þetta á meðal annars ræt- ur sínar að rekja til þess, að við- komandi manneskja er alls ekki undir það búin að mæta þeirri áreynslu, sem á hana hefur verið lögð. Hin líkamlega vangeta á svo aftur undirrót sína í því, að ekki hefur verið hirt nógu vel um að byggja upp líkamann og beita honum rétt. Oft starfar þetta ein- ungis af kæruleysi eða þá full- komnu skilningsleysi á nauðsyn þess að viðhalda styrkleika lík- amans. Þetta hefur ósjaldan vald- ið sjúkdómum, sem hafa kostað langvarandi lækningar, tíma og peninga. BADEDAS HeildsölubirgSir: H. A. TULINIUS Austurstræti 14 BADEDAS BADEDAS BADEDAS BADEDAS er ])aðefni, sem unnið er úr kastaníusafa. gerir húð yðar silkimjúka, eykur hreysti hennar og vemdar hana gegn sprungum og afrifum. er mest selda baðefni og hárshampo Evrópu í dag. vítamínbað er allra þeirra, sem einu sinni reyna það. BADEDAS fæst í næstu verzlun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.