Frjáls verslun - 01.05.1968, Síða 4
4
FRJALS VERZLUN
FIRJALS
VIERZLUISI
5. TBL. 196B
MÁNAÐARLEGT TÍMARIT
UM VIÐSKIPTA- □□
EFNAHAGSMAL— STDFNAÐ 1939.
GEFIO ÚT í SAMVINNU VIÐ SAMTOK
VERZLUNAR- DG'
ATHAFNAMANNA.
ÚTGÁFU ANNAST:
VERZLUNARÚTGÁFAN H.F.
FRAMKVÆMDASTJORI:
JDHANN BRIEM.
AUGLYSINGASTJDRI:
MAGNÚS B. JQNASSDN
SKRIFSTDFA DÐINSGÖTU 4.
SÍMAR*.
B23BB AFGREIÐSLA
B23B1 AUGLYSINGAR
B23B2 RITSTJÖRN
PÓSTHÖLF 1193
RITSTJÓRI:
JÓHANN BRIEM.
RITSTJÓ RNARFU LLTRÚAR:
BJÖRN V. SIGURPÁLSSDN
MARKÚS ÖRN ANTDNSSDN
□ REINAHÖFUNDAR:
FREYSTEINN JÓHANNSSDN
HERBERT GUÐMUNDSSDN
ÓLI TYNES
ÞÓR WHITEHEAD
STEINAR LÚÐVÍKSSDN
LJÓSMYNDARI:
KRISTINN BENEDIKTSSDN.
SETNING DG PRENTUN:
FELAGSPRENTSMIÐJAN H.F.
MYNDAMÓT:
MYNDAMÓT H.F.
BDKBAND:
FELAGSBÓKBANDIÐ H.F.
VERÐ í ÁSKRIFT KR. 65.- Á MÁN.
í LAUSASÖLU KR. BD.- EINT.
ÖLL RETTINDI ÁSKILIN.
bréf
fra
útgefanda
Frjáls verzlun efnir að þessu sinni til lesendahappdrættis
meðal lesenda sinna. Eina skilyrðið til þátttöku er það, að
lesendur taki þátt í skoðanakönnun, sem þeir senda síðan
lil Frjálsrar verzlunar. Vonast blaðið til, að lesendur taki
þátt í þessu lesendahappdrætti, en vinningur er ferð til
Mallorca, en þangað fer árlega fjöldi Islendinga. Er lesenda-
iiappdrætti þetta tilraun Frjálsrar verzlunar til þess að auka
upplag blaðsins enn meir, en það er nú orðið með einn
stærsta áskrifendahóp af íslenzkum tímaritum.
Efni blaðsins er að vanda fjölbreytt, enda er lögð sérstök
áherzla á að vanda til þess. Byggingarframkvæmdir og af-
skipti ríkisins af byggingarmálum eru málefni, sem varða
alla þjóðfélagsþegna. Ræðir blaðið aukin afskipti ríkisins
og þau sjónarmið, sem komið hafa fram í umræðum manna
á milli.
Almenningshlutafélög bafa oft verið á döfinni, en í Þjóð-
málaþætti Frjálsrar verzlunar svarar Eyjólfur Konráð Jóns-
son ritstjóri spurningum blaðsins varðandi þau málefni, en
Eyjólfur hefur manna mest barizt fyrir almenningshluta-
íélögum. Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli hefur verið starf-
rækt i tæp tíu ár. I því tilefni kynnir Frjáls verzlun starfsemi
F ríhaf narinnar.
Landhelgisgæzlan fékk fyrir skömmu nýtt varðskip, en
rekstur hennar verður stöðugt fjölþættari. Ræðir FV við
Pétur Sigurðsson forstjóra um rekstur Landhelgisgæzlunnar.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar gegnir veigamiklu
hlutverki í borgarrekstrinum, en Torben Friðriksson ritar
grein um hana fyrir blaðið.
Þjóðernislegir hleypidómar hafa markað mannkyninu mikl-
ar hörmungar, en i Evrópu hefur verið reynt að útrýma
þessum hleypidómum og greinir FV frá árangri þessa starfs.
Árið 1971 breytist brezka myntkerfið, og tekið verður upp
einfaldara kerfi, sem byggist á tugakerfinu, og skýrir FV
frá þessum breytingum og tilhögun þeirra.
Akureyri nýtur vaxandi vinsælda sem viðkomustaður
ferðamanna, enda er bærinn raunverulegur „höfuðstaður
Norðurlands“. Greinir FV frá þeim möguleikum, sem eru
fyrir hendi fyrir ferðamanninn, gistiaðstöðu og ýmsri ann-
arri þjónustu.
Einnig er fjöldi annarra greina í blaðinu, svo sem um
aukna framleiðslu Efnahagsbandalagsins, Ferrania ljós-
myndafyrirtækið, verzlunarhætti i Danmörku, atvinnuleysi
í Bretlandi og fleira.