Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1968, Blaðsíða 22

Frjáls verslun - 01.05.1968, Blaðsíða 22
22 FRJÁLS VERZLUN Umbúðir Ferrania eru mjög smekklegar. VÖRUR — ÞJÓNUSTA FERRANIA F E R R A NI A-ljósmyndafiImur hafa rutt sér talsvert til rúms hérlendis að undanförnu, og fer þeim áhugaljósmyndurum fjölg- andi, sem reyna þessa filmuteg- und, enda mun sala hennar aukast stöðugt. Þykja t. d. litir Ferrania- litfilmanna koma mjög vel fram á myndum, og í frásögur erfærandi, að Ferrania-röntgenfilmur urðu fyrir valinu til notkunar í Borgar- sjúkrahúsinu. Þjónusta Ferrania við íslendinga þykir ágæt, en um- boð fyrir þessar filmur hérlendis hefur Austurbakki hf. Er litfilma, sem póstsett er í Reykjavík til framköllunar í Danmörku, undan- tekningalítið komin til baka eftir vikutíma og stundum nokkrum dögum fyrr. Fróðlegt er að rifja lítillega upp sögu þessa ljósmyndafilmufyrir- tækis, sem dregur nafn sitt af ítölsku smáþorpi í norðurhluta Ítalíu, enda þótt margir haldi, að það sé þorpið, sem dragi nafn sitt af fyrirtækinu. Árið 1915 tóku SIPE-efnaverk- smiðjurnar á Ítalíu þá ákvörðun að setja á stofn sprengiefnaverk- smiðju við þetta smáþorp, enda er svæðið sérstaklega vel til þess fallið. SIPE framleiddi þarna ,,Nitrocellulose“ sprengiefni, sem mikið var notað. Og á þeim tim- um, sem í hönd fóru þegar eftir stofnun þessarar nýju verksmiðju, gekk fyrirtækið mjög vel, enda geisaði stríð og enginn verkefna- skortur hjá sprengiefnaframleið- endum. Eftir styrjöldina fór fljótlega að bera á örðugleikum, og gekk illa að semja sig að friðsamlegri fram- leiðslu, en tókst þó að lokum og leiddi árið 1917 til samvinnu við franska filmufyrirtækið PATHÉ FRÉRES. í sameiningu fram- leiddu fyrirtækin cellulose filmu, sem ljósnæm húð var borin á, og var framleiðslan þá orðin hæf til ljósmyndagerðar. Árið 1923 kom á markaðinn pósitíf filma, sem fyrst var sýnd almenningi á TURIN-sýningunni það ár. Tíu ár- umsíðar hafði hið franska PATHÉ fyrirtæki dregið sig út úr sam- vinnunni, en nýr aðili komið í staðinn, fyrirtæki, sem framleiddi prentvörur í Mílanó, CAPPELLI. Nú var nafninu breytt, og hét samsteypan FILM CAPPELLI FERRANIA. Upp úr þessu liófst framleiðsla á miklu úrvali alls kyns Ijósmyndavarnings, semseld- ist vel. Fyrstu FERRANIA-litfilm- urnar komu á markaðinn eftir heimsstyrjöldina síðari árið 1949. Síðan þá hefur FERRANIA stöð- ugt verið að auka framleiðslu sína og sölu um allan heim. Mestu þáttaskil í sögu FER- RANIA urðu svo í júlí árið 1964, er 3M félagið keypti upp öll hluta- bréfin og tók við öllum rekstri. Fyrstu afleiðingar þessara kaupa, sem almenningur tók eftir, var bylting í útliti umbúða, og stóð nú á þeim FERRANIA 3M. Engan undrar þótt 3M hafi viljað fá eitt- hvað fyrir sinn snúð, því að kaup þeirra á FERRANIA er stærsta fjárfesting 3M félagsins í einu lagi og á einum stað allt til þessa dags. En 3M leiðtogar voru ekki ánægðir með það eitt að breyta umbúðum um ljósmyndafilmur. Þeir bókstaflega ,,dældu“ fjár- magni í tilrauna- og endurbóta- starfsemi, sem neytendur njóta í dag. Starfsaðferðir 3M félagsins hafa ávallt verið þær að leggja aðaláherzlu á vöruvöndun oggæði og vera fyrst með nýjungar. Ferrania, smáþorp í norðurhluta Ítalíu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.