Frjáls verslun - 01.05.1968, Blaðsíða 48
44
FRJÁLS VERZLUN
um Grímseyjar fer fjölgandi, enda
er þar merkilega búsældarlegt,
þótt einangrað sé.
Ferð frá Akureyri til Ólafsfjarðar
og Siglufjarðar í gegn um Dalvík
er flestum nýstárleg. Það gera
Múlavegur og Strákagöng. Út af
fyrir sig er gaman að skoða þessi
nýju samgöngumannvirki og
njóta í góðu veðri útsýnis frá
Múlavegi til Grímseyjar. En þar
við bætist, að með ferð um þessar
slóðir má kynnast mjög vel dag-
legu lífi Norðlendinga. — Þessa
ferð má fara um leið og haldið er
til Suð-Vesturlands, og er þá far-
ið um Fljótin í Skagafirði og vest-
ur.
Innanverður Eyjafjörður er
eitthvert glæsilegasta landbúnað-
arhérað á íslandi. Um það má
fara hringferð frá Akureyri og er
það stutt leið. Auk landbúnaðarins
er þar marga merka staði að sjá.
Þá er ferð austur að Mývatm
með viðkomu hjá Goðafossi og/eða
í Húsavík. Sjálfsagt er að staldra
við í Vaglaskógi í Fnjóskadal.
Þessa ferð má fara eftir mörgum
leiðum og ýmist á stuttum eða
löngum tima. Þó er rétt að benda
sérstaklega á leiðina Vaglaskógur
— Goðafoss — Mývatn — Húsavík
(um kísilveginn) — Grenjaðar-
staður í Aðaldal (byggðasafn).
Við Mývatn er rekin ferða-
þjónusta frá hótelunum tveim. M.
a. sér Ferðaskrifstofa Akureyrar
um skoðunarferð. Hún sér einnig
um ferð til Öskju og austur og
norður yfir Fjöll að Dettifossi, um
Ásbyrgi, Tjörnes og Húsavík. Að
slepptri Öskiuferðinni má fara
þessa ieið á venjulegum bílum.
Mývatnsferð má einnig tengja
við ferð austur um land, annað
hvort beint yfir öræfin eða með
sjó um Axarfjörð, Melrakkasléttu
(Raufarhöfn), Þistilfjörð (Þórs-
höfn). Bakkafjörð og Vopnafjörð.
Loks eru tjölmargar leiðir ó-
taldar fyrir fjallafara eingöngu.
Þessi stuttorða lýsing hefur að-
eins fáeinar hugmyndir og ekki ei
getið um margháttaða fyrir-
greiðslu, sem unnt er að fá víða.
A það skal bent, að sjálfsagt er
að bera sig saman við ferðaskrif-
stofur, þegar haldið er upp í ferð-
ir um þessar slóðir, enda liggja
Nonnahús á Akureyri,
en það er opið
til sýnis ásamt
Davíðshúsi, Matthíasarhúsi,
Amtsbókasafninu,
Minjasafninu og
Akureyrarkirkju.
þar fyrir allar upplýsingar, sem
treysta má á hverjum tíma, og ein-
faldast og öruggast er að fela þeim
útvegun á gistingu o. þ. u. 1.
Ferðamannabærinn.
Það, sem hér hefur verið sagt,
gefur nokkra yfirsýn yfir ferða-
mannabæinn Akureyri, höfuðstað
Norðurlands og ferðamiðstöð. Að
mörgu fleiru má hyggja í þessu
sambandi, sem ekki er rúm tii að
tíunda hér. Það má alla vega ljóst
vera, að Akureyri liefur þegar af
talsverðu að státa í ferðamálum.
Enda sannast það á því, að inn-
lendir og erlendir ferðamenn
leggja þangað leið sína í síaukn-
um mæli ár frá ári. Það er alltént
nokkur viðurkenning. Því er ó-
hætt að reyna Akureyrarferð í
sumarleyfinu.