Frjáls verslun - 01.05.1968, Qupperneq 13
FRJÁLS VERZLUN
13
■
\mPÁ áh
Neón auglýsingar í Kaupmannahöfn.
VERZLUNARHÆTTIR í
DANMÖRKU
Fréttamaður Frjálsrar verzlunar var staddur fyrir skömmu í Árósum.
Skrifar hann eftirfarandi grein um verzlunarhœtti og auglýsin gaaðferðir.
íslendingar hafa ekki alltaf ver-
ið hrifnir af verzlunarháttum
frænda okkar Dana, enda ekki
haft ásæðu til. En það hefur margt
breytzt, síðan þeir ráku hér ein-
okunarverzlun á árunum, og það
er reglulega gaman að kynna sér
hætti þeirra nú. Eins og hér á Is-
landi hafa flestir danskir smásölu-
kaupmenn sína föstu viðskipta-
vini, og þeir leggja sig mikið
fram við að gera þá ánægða og
laða til sín fleiri, því að samkeppn-
in er hörð.
Það þykir til dæmis sjálfsagð-
ur hlutur að aka vörum heim til
viðskiptavinanna án nokkurrar
aukaþóknunar. Kaupmennirnir og
starfsfólk þeirra leggja mikia á-
herzlu á að vingast við kaupend-
urna, en samt er alltaf gætt
fyllssu kurteisi og engum myndi
detta í hug að þúa kaupandann,
ef hann er yfir fermingaraldri.
Það kemur satt að segja dálítið
broslega fyrir sjónir, fyrst að sjá
kannski kaupmann um fertugt
þéra strákhnokka, sem ekki er
meira en 15—16 ára gamall. En
þetta er föst og ófrávíkjanleg
regla. Og svo er það afgreiðslu-
fólkið.
Ef þú kemur t. d. inn í skóverzl-
un og byrjar að líta í kring um
þig, líður ekki á löngu þar til
ung stúlka kemur til þín. Hún er
snyrtilega klædd, hvorki með
tyggigúmmí eða rúllur í hárinu.
Hún bíður þar til þú lítur á hana,
þá hneigir hún sig kurteislega og
spyr EKKI „Kvatlara fá?“ Hún
segir með sínu blíðasta brosi:
„Get ég eitthvað hjálpað yður,
herra?“ Þú segir henni hvers kon-
ar skó þú vilt og hún finnur þá
fyrir þig. Ef þú ert ánægður, pakk-
ar hún þeim inn, fylgir þér svo til
dyra, opnar þær og hneigir sig,
þegar þú gengur framhjá og út
í sólskinið, sem virðist mikiu
bjartara, en þegar þú fórst inn í
verzlunina. Það er engin undir-
gefni í framkomu hennar, hún er
ekki að reyna að „sleikja sig upp“,
eins og það er svo smekklega kall-
að hér á íslandi. Henni er það
bara eðlilegt að vera kurteis.