Frjáls verslun - 01.05.1968, Síða 16
16
FRJÁLS VERZLUN
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
F.V. hefur fengið Torben Friðriksson forstjóra til þess að rita
eftirfarandi grein, en Innkaupastofnunin annast innkaup hjá innlendum
framleiðendum, heildsölufyrirtœkjum og umboðsmönnum,
ásamt margvíslegum útboðum.
Með samþykkt í bæjarstjórn h.
16. júní 1959, voru núverandi
starfsreglur fyrir Innkaupastofn-
un Reykjavíkurborgar settar, og
tók stofnunin síðan til starfa hinn
1. desember sama ár. Reyndar
hafði áður fyrr verið starfrækt
Innkaupastofnun hjá Reykjavíkur-
borg, en með ofangreindri sam-
þykkt var starfssvið hennar
stækkað og ýmsar bretingar gerð-
ar, þannig að stofndagur hennar í
núverandi mynd telst vera hinn 1.
desember 1959.
í samþykktinni segir meðal
annars um verkefni stofnunar-
innar, að þau séu „innkaup eða
samningar um kaup á vörum og
þjónustu fyrir borgarsjóð Reykja-
víkur og stofnanir hans, eftir því
sem stjórn stofnunarinnar ákveð-
ur á hverjum tíma“, og einnig
„innkaup eða samningar um kaup
á vörum og þjónustu innanlands
svo og öll innkaup á vörum erlend-
is frá. Borgarstjórn setur almenn-
ar reglur um hvers konar útboð."
Verksvið Innkaupastofnunarinnar
er því þannig í aðalatriðum tví-
þætt. Annars vegar annast hún
innkaup á vörum hjá innlendum
framleiðendum, hjá heildsölufyrir-
tækjum hér í borg og hjá umboðs-
mönnum erlendra fyrirtækja,
þannig að Innkaupastofnunin sér
um beinan innflutning vara, er
keyptar eru hjá erlendum fyrir-
tækjum fyrir milligöngu íslenzkra
kaupsýslumanna. Hins vegar ann-
ast hún hvers konar útboð fyrir
hönd hinna einstöku borgarstofn-
ana, þ. e. útboð eru auglýst í dag-
blöðum borgarinnar, útboðsgögn
afhent á skrifstofu stofnunarinnar
og síðan eru tilboðin opnuð á áð-
ur auglýstum opnunartíma að
bjóðendum viðstöddum yfirleitt,
og loks eru tilboðin metin og geng-
ið frá vörukaupunum, ef um slíkt
er að ræða, eða verksamningar
gerðir um hvers konar verklegar
framkvæmdir eða ýmis konar
smíðar á vegum borgarfélagsins.
Af verklegum framkvæmdum má
nefna byggingu skólahúsa, gatna-
gerð, vatns- og holræsalagnir og
hitaveitulagnir. Flest stór vöru-
kaup svo og útboð og ákvörðun
um samningsgerðir vegna verk-
legra framkvæmda er afgreitt á
stjórnarfundum hjá Innkaupa-
stofnuninni. Stjórnarmenn henn-
ar eru kosnir af borgarstjórn, cn
borgarritari er formaður stjórnar-
innar.
Vörukaup.
Vörukaup Innkaupastofnunar-
innar hafa stöðugt farið vaxandi
frá stofnun hennar. Arið 1960 var
vöruvelta stofnunarinnar 29 millj.
kr„ en árið 1967 nam vöruveltan
163 millj. kr. Af þessari upphæð
annaðist Innkaupastofnunin sjaif
innflutning vara að upphæð 119,4
millj. kr„ er þó nær undantekn-
ingarlaust voru pantaðar hjá ís-
lenzkum umboðsmönnum erlendra
fyrirtækja. Vörur fyrir 43,6 millj.
kr. voru hins vegar keyptar á inn-
lendum markaði, þ. e. a. s. hjá ís-
lenzkum heildsölufyrirtækjum eða
íslenzkum framleiðendum.
Innkaupastofnunin er starfrækt
sem þjónustufyrirtæki allra borg-
arstofnana og sér hún því um svo
til alian innflutning á vegum borg-
arinnar. Aðal viðskiptamenn henn-
ar innan borgarkerfisins eru Raf-
magnsveita Reykjavíkur, Hita-
veita Reykjavíkur, Strætisvagnar
Reykj avíkur, Borgarsj úkrahúsið,
Malbikunarstöð og Vélamiðstöð
borgarinnar. Af vöruveltu Inn-
kaupastofnunarinnar árið 1967,
sem eins og áður er getið nam
163 millj. kr„ voru 39 millj. kr. á
vegum Rafmagnnsveitunnar, 23
millj. kr. á vegum Hitaveitunnar,
23 millj. kr. á vegum Strætis-
vagna Reykjavíkur, og 14 millj.
kr. á vegum Borgarsjúkrahússins.
Þessar upphæðir og skipting þessi
er að sjálfsögðu breytileg frá ári
til árs og sem dæmi má nefna, að
árið 1966 vur stærsti viðskiptavin-
ur Innkaupastofnunarinnar Borg-
arsjúkrahúsið í Fossvogi, en vöru-
salan til sjúkrahússins nam það
ár tæpum 38 millj. kr.
Að sjálfsögðu er ógerlegt að
geta hér um allar vörutegundir,
sem fluttar eru inn til landsins á
vegum Reykjavíkurborgar, en sem
dæmi má nefna að árið 1967 voru
fluttir inn jarðstrengir og raf-
magnsvír á vegum Rafmagns-
veitu Reykjavíkur fyrir 21,3 miilj.
kr„ strætisvagnagrindur á vegum
SVR fyrir 19 millj. kr. og ýmis