Frjáls verslun - 01.05.1968, Síða 18
1B
FRJÁL5 VERZLLJhí
stólsmyndun hefur verið talin
mjög æskileg, vegna þess að hún
eykur gildi Innkaupastofnunarinn-
ar sem þjónustufyrirtækis fyrir
hin ýmsu borgarfyrirtæki, einmg
á fjármálasviðinu. Innkaupa-
stofnunin greiðir að sjálfsögðu
innflutningsgjöld og söluskatt
samkvæmt gildandi reglum á
hverjum tíma.
Að sjálfsögðu eru mörg vöru-
kaup tæknilegs eðlis, þannig að
eingöngu er um að ræða kaup á
nákvæmlega tiltekinni vöruteg-
und, sem talin hefur verið sú
heppilegasta af tæknimönnum
hinna ýmsu borgarstofnana. í slik-
um tilvikum er því ekki hægt að
beita útboðsaðferðinni, né heldur
leita tilboða, heldur sendir við-
komandi borgarfyrirtæki beiðni
um pöntun til Innkaupastofnunar-
innar, sem síðan sér um innflutn-
inginn að öilu leyti.
Útboð og samningsgerð
vegna verklegra framkvæmda.
Eins og áður var getið, annast
Innkaupastofnunin einnig útboð
og samningsgerð vegna verklegra
framkvæmda á vegum borgarinn-
ar, og hefur starfsemi stofnunar-
innar mjög færzt í aukana vegna
þessara samningsgerða. T. d. má
nefna, að árið 1967 voru gerðir 62
verksamningar borið saman við
39 samninga árið á undan og nam
heildarverðmæti samninganna
1967 um 205,6 millj. kr. Heildar-
samningsupphæð árið á undan var
að vísu nokkuð hærri eða um 248
millj. kr., þótt tala samninganna
væri ekki nema 39 það ár, en hér
veldur mestu um, að einmitt árið
1966 var gerður samningur um
byggingu Sundahafnarinnar, en
upphæð hans nam 81,7 millj. kr.,
sem er óvenjulega há samnings-
upphæð. Árið 1967 voru sex samn-
ingar hærri að upphæð en 15.000.-
000,00 kr., hver um sig, en þeir
eru: Samningur um byggingu 4.
áfanga Vogaskóla að upphæð 40,9
millj. kr., samningur um bygg-
ingu 1. áfanga Álftamýrarskóla að
upphæð 21,3 millj. kr., samningur
um byggingu Árbæjarskóla að
upphæð 18 millj. kr., samningur
um smíði á 20 yfirbyggingum fyr-
ir Strætisvagna Reykjavíkur að
upphæð 16,7 millj. kr., og tveir
samningar um gatnagerð og lagn-
ir, samanlagt að upphæð 30,7 millj.
kr. Er enginn vafi á, að mjög hag-
kvæm kjör fást fyrir borgarsjúö
Reykjavíkur með því að beita al-
mennum útboðum í sambandi við
ýmsar verklegar framkvæmdir, og
er samkeppnin oft mjög hörð miiii
hinna einstöku verktakafyrir-
tækja. Segja má, að útboðsaðferð
borgarinnar hafi stuðlað að þvi,
að ýmiss verktakafyrirtæki haia
verið stofnuð og síðan unnið við
ýmsar verklegar framkvæmdir í
þágu borgarinnar, og undantekn-
ingarlítið hefur slík samvinna
borgarfélagsins við hina ýmsu
verktaka verið hin ákjósanleg-
asta.
Hér að ofan hafa verið nefnd
helztu verksvið stofnunarinnar og
eins og lítillega var minnzt á í
upphafi greinarinnar, er það einn-
ig innan verkahrings Innkaupa-
sofnunarinnar að tryggja sem hag-
kvæmust kjör í sambandi við vöru
flutninga til landsins, sjótrygg-
ingar og bifreiðatækjatryggingar
borgarinnar, svo og olíukaup borg-
arinnar, t. d. vegna kyndistööva
Hitaveitunnar og hafa verið gerð-
ir ýmsir samningar þ. a. 1. Einnig
eru í gangi ýmsir samningar t. s.
varðandi sölu á einkennisbúning-
um lögreglu- og slökkviliðsmanna
og þess háttar.
Innkaupastofnunin hefur ef til
vill af sumum aðilum verið álitm
skæður keppinautur í viðskiptum
borgarinnar, en að undanförnu
hefur ríkt vaxandi skilningur á
því, að hún er mjög stór kaupandi
og viðskiptavinur hjá allmörgum
kaupsýslumönnum hér í borg, og
að nærvist hennar og verksvið
hefur verið verzlunarstéttinni í
heild til gagns fremur en öfugt og
vonandi er, að sú staðreynd og
vitneskja megi einnig ríkja í fram-
tíðinni.
AUGLYSENDUR, LATID OKKUB
GEBA AUGLÝSINGAMÓTIN
FYRIB YÐUR
MYNDAMÓT hf.
PfllNTMVNDAGIRB - ABAISIKAII 6 - MYKJAVÍK - SÍMI 17132