Frjáls verslun - 01.05.1968, Blaðsíða 32
2B
FRJALS VERZLUN
Starfsemi Landhelgisgæzlunnar
verður stöðugt fjölþættari
Rœtt við Pétur Sigurðsson, forstjóra Landhelgisgœzlunnar.
LANDHELGISGÆZLA okkar
er í stöðugum vexti og starfsemi
hennar verður æ umsvifameiri.
Fiskiskipastóll íslendinga hefur
vaxið ört á sl. árum, þannig að
þörf er á fullkomnum björgunar-
og aðstoðarskipum. Bjarganir
skipa og aðstoð við þau koma að
langmestu leyti í hlut Landhelgis-
gæzlunnar, og hefur hún því orð-
ið að fylgjast vel með nýjungum
á þessu sviði vegna hinna öru
framfara í flotanum. Kannski
kann mörgum að þykja undarlegt
að Frjáls verzlun skuli kynna
þetta ríkisfyrirtæki, þar sem
margur mundi ætla að hagsmunir
sjálfstæðra björgunarfélaga og
Landhelgisgæzlunnar rækjust oft
á, þegar um björgun eða veitta
aðstoð er að ræða. En eftir að hafa
rætt við Pétur Sigurðsson, for-
stjóra Landheigisgæzlunnar, kom-
umst við að raun um annað.
— Við skulum gera okkur grein
fyrir því, segir Pétur, að í daglegu
lífi kemur það oft fyrir, að bæöi
einstaklingar og einhver ríkis-
stofnun getur veitt sömu þjónustu.
Er það þá oft álitamál, hvenær eða
hvort stór ríkisstofnun, svo sem
Landhelgisgæzlan, á að fram-
kvæma ákveðið verk, ef ein-
staklingar geta gert þetta sama
verk fyrir hóflegt verð. Það
er áreiðanlega ekki ætlun löggjaf-
arinnar, að skip eða önnur tæki
Landhelgisgæzlunnar keppi við
einstaklinginn á frjálsum mark-
aði, og þess vegna hefur það verið
stefna okkar að láta alltaf öðrum
í té vinnu varðandi t. d. aðstoð við
eða björgun skips, séu þeir megn-
ugir að framkvæma hana.
Við spyrjum Pétur um skipakost
og annan tækjaútbúnað Landhelg-
isgæzlunnar: — Landhelgisgæzlan
á nú 3 stór skip og tvö lítil. Ægi
gamla, sem var 39 ára, höfum við
selt til niðurrifs fyrir nokkru, og
minnsta skipinu, Maríu Júlíu, hef-
ur verið lagt, þar sem verkefni
fyrir það hafa ekki verið næg mið-
að við tilkostnað að hafa það í
gangi.
Þróunin í varðskipsmálum hef-
ur verið í þá átt að hafa þau stærri
en færri, og kemur þetta til af
þrennu: í fyrsta lagi hefur gæzlan
færzt lengra út á hafið, í öðru lagi
hafa fiskibátar stækkað svo, að
minni varðskipin geta ekki fylgt
þeim eftir, né hafa vélarafl til
að draga þá, komi til þess. Og í
þriðja lagi hefur þróunin orðið
sú, að siglingar og sjósókn er allt
árið í kring og sótt á fjarlæga
SIMCA1301/1501
Vandaðir
• •
CHRYSLER-LIUBOÐIÐ VOkLLL hf.
Hringbraut 121 — Sími 10 600
Glerárgötu 26 — Akureyri