Frjáls verslun - 01.07.1968, Blaðsíða 14
12
FRJÁLS VERZLUN
Ritstjóri Frjálsrar verzlunar, Jóhann Briem, varð í sumar góðíúslega við
tilmœlum mínum um, að eitt tbl. Frjálsrar verzlunar yrði að miklu leyti helg-
að 50 ára afmœli Sjóvátryggingarfélags íslands hf.
Þorsteinn Egilson, fulltrúi í íslenzkri endurtryggingu, tók að sér að að-
stoða mig við útgáfu þessa afmœlisblaðs eða þess hluta þess, sem helgað-
ur er félaginu, og hefur hann lesið prófarkir af því.
Hann á ennfremur sjálfstœða grein í blaðinu, sem hann skrifaði að minni
beiðni, er hann nefnir Saga sjótrygginga.
Aktúar félagsins, Ómar Árnason, hefur gert línurit það, sem fylgir grein-
unum.
Þeim, sem áður eru nefndir, og öðrum greinarhöfundum eru hér með
þökkuð þeirra störf.
Er það von mín, að blað þetta gefi nokkra yfirsýn yfir 50 ára starfsemi
félagsins og um leið um tryggingamál almennt.
1 október 1968.
Stefán G. Björnsson.