Frjáls verslun - 01.07.1968, Blaðsíða 33
iFRJALS VERZLUNÍ
31
T
EMsvoii getur enn í dag valdið yður ó-
bætanlegu tjóni ef þér tryggið ekki eigur
yiar i samræmi vii miverandi verilag.
Islendingar eru elzta tryggingaþjóJ i heimi. — Þegar á soguöld —
höfiu menn mei scr cinskonar tryggingar, það er ai segja, ai ef
cinhvcr vari fyrir tjóni voru allir mcnn i sama goiorii skyldir ai
hjálpa þeim, sem fyrir tjóninu vari. — Nú á dögum, aftur á móti,
greiia menn fyrirfram fyrir tryggingar sinar og láta trygging-
arfólög hera áhættuna. — Tryggii hjá elzta og traustasta trygg-
ingahlutafelagi landsins.
Sjóvðtryqqil
Jiess að hann sé skaðabótaskyldur
að lögum, falla utan við svið þess-
arar vátryggingar.
11. Vanefndir á samningi.
Vátryggingin bætir aðeins tjón,
sem vátryggður er ábyrgur fyrir
eftir skaðabótareglum utan samn-
inga. Ef ábyrgðartryggður smiður
er skaðabótaskyldur vegna van-
efnda á samningi, t. d. vegna við-
gerðar, sem nauðsynlegt er að
vinna upp að nýju, að nokkru eða
öllu leyti, af því að smiðnum hafa
orðið á mistök við viðgerðina, þá
bætir ábyrgðartrygging ekki slíkt
tjón. Sömuleiðis endurgreiðir
ábyrgðartryggingin smiðnum eigi
kostnað, sem hann verður fyrir
í sambandi við það, að hlutur, sem
hann hefur smíðað. reynist gall-
aður eða ónothæfur.
12. Vinnuslys.
Megnið af bótagreiðslum al-
mennra ábyrgðartrygginga fer til
greiðslu á bótum fyrir vinnu-
slys.
íslenzkir atvinnurekendur hafa
stundum álitið ábyrgðartrygg-
ingu óþarfa, vegna þess að laun-
þegar eru sjálfkrafa slysatryggðir
hjá Tryggingastofnun ríkisins skv.
lögum um almannatryggingar nr.
40/1963. En dæmin sanna, að hin
lögboðna slysatrygging hrekkur
skammt. Bætur úr henni fyrir
tímabundið atvinnutjón, „dagpen-
ingar“, nema nú aðeins 165,00 kr.
á dag fyrir kvæntan mann eða
gifta konu, sem er aðaifyrirvinna
heimilis, 146,00 kr. fyrir aðra og
19,00 kr. fyrir hvert barn á fram-
færi, allt að þrem. Hámarksdag-
peningar fyrir fjölskyldumann,
sem verður óvinnufær vegna
vinnuslyss, eru því 222,00 kr.1 Sé
atvinnuveitandi hins slasaða að
fullu skaðabótaskyldur, ber hon-
um skylda til að greiða tjónþola
fullt atvinnutjón, auk annarra
bóta, sem getið er í 6. kafla hér
að framan. Ef laun tjónþola eru
t. d. 700,00 kr. á dag, bætir
ábyrgðartryggingin 700,00 kr. -4-
dagpeninga frá Tryggingastofnun
ríkisins, sem eru 146,00 til 222,00
kr. á dag, eins og fyrr greinir.
Örorku- og dánarbætur ríkis-
trygginganna eru og miklu lægri
en samsvarandi bætur úr ábyrgð-
artryggingu.
Á síðustu árum hafa sum stétt-
1 Sjá þó lög nr. 57/1968.
arfélög samið um, að atvinnurek-
endur kaupi sérstaka slysatrygg-
ingu til viðbótar ríkistrygging-
unni. Slíka vátryggingu selja vá-
tryggingafélögin og greiðir hún
talsvert hærri bætur en ríkis-
tryggingin. í kjarasamningi er
alltaf tekið fram, að bótagreiðsl-
ur samningsbundinnar slysatrygg-
ingaringar komi til frádráttar
ábyrgðartryggingarbótum, eða bót-
um, sem atvinnurekanda ber að
greiða skv. islenzkum skaðabóta-
rétti. Dragast bætur samnings-
bundinnar slysatryggingar frá, á
sama hátt og bætur Trygginga-
stofnunar ríkisins.
13. Vátryggingarskilináíar.
Þess er eigi kostur hér að segja
frá vátryggingarskilmálum þeim,
er gilda um almennar ábyrgðar-
tryggingar. Það skal aðeins tekið
fram, að menn geta valið um
ýmsa skilmála og vátryggingar-
upphæðir. Sumar tegundir at-
vinnureksturs þurfa víðtækari
skilmála en aðrar og greiða menn
að sjálfsögðu hærra iðgjald fyrir
fullkomnari váti'yggingarvernd.
Vissar áhættur eru þó alltal
undanþegnar ábyrgðartryggingar-
vernd, bæði á íslandi og í öðrum
löndum.