Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1968, Blaðsíða 28

Frjáls verslun - 01.07.1968, Blaðsíða 28
26 FRJÁL5 VERZLUN BRAGI HLÍÐBERG: BRUNATRYGGINGAR Lausafjár- og fasteignatryggingar verða sífellt fjölbreyttari. Segja má, að saga innlendrar brunatryggingarstarfsemi hefjist ekki fyrr en árið 1915. að Bruna- bótafélag íslands var stofnað með lögum, en það tók til starfa í árs- byrjun 1917. Reykjavíkurbær hafði þó um tíma annazt um brunatryggingar á fasteignum í bænum, en þær tryggingar höfðu verið í höndum ýmissa danskra og þýzkra tryggingafélaga, og var svo allt til ársins 1939, að Sjóvá tók þær tryggingar að sér. En brautryðjendastarf Brunabótaíé- lagsins var að mestu leyti fólgið í tryggingum á fasteignum í sveit- um og kauptúnum landsins. Þótt félagið tæki að nokkru að sér brunatryggingar á lausafé, var sá hængur á í fyrstu, að upphæðjr þær, sem félagið tók að sér, voru takmörkunum háðar og að hluti áhættunnar var eftir í héraði, sem eigináhætta. Það má því til sanns vegar færa, að með stofnun brunadeildar Sjó- vátryggingarfélagsins árið 1925 hafi fyrsta skrefið verið stigið til reksturs lausafjártrygginga af innlendum aðila, í því formi, sem nú tíðkast hjá vátryggingafélög- um. Félagið tók að sér allar teg- undir áhættna, án sérstakra tak- markana í upphæðum, tók hluta af áhættunni í eigin áhættu og sá sjálft um endurtrygginguna. MIKILLAR AÐGÆZLU ÞÖRF. Þegar höfð er í huga Reykjavík ársins 1925, sem talið mun hafa um 22.000 sálir, verzlun og við- skipti í engu hlutfalli við það, sem nú er, þá fer ekki hjá því, að mikla aðgæzlu hefur þurft til að rekstur brunatrygginga á traust- Bragi Hlíðberg: Síðustu árin erfið. um grundvelli væri mögulegur, með svo lítilli áhættudreifingu. En utan um þennan kjarna var starf- semi deildarinnar byggð og hefur svo verið æ síðan. Saga deildar- innar er fyrst og fremst saga hinna frjálsu lausafjártrygginga, því deildin hefur aldrei látið veru- lega að sér kveða á vettvangi hinna lögbundnu fasteignatrygg- inga, en af mörgum eru þessir tveir þættir álitnir óskyldir í eðli sínu. Það var því ekki nema eðlilegt, að hægt væri farið af stað, en reksturinn stóð nokkurn veginn undir sér fyrstu árin. Iðgjalds- taxtar voru fengnir „að láni“ hjá dönskum félögum, sem þróazt höfðu við aðrar aðstæður en hér voru, því að um innlenda reynslu, sem væri byggjandi á, var ekki að ræða. Brunatryggingarskírteinið sjálft var einnig sniðið eftir hinu danska, og hefur það reynzt furðu gott plagg, því umrót seinni tíma hafa ekki náð að raska því neitt að ráði. Þó að sumum kunni e. t. v. að finnast við lestur þess, að það sé gamaldags hefur það þann kost, að það er eitt af fáum trygg- ingaskírteinum, sem almenningur getur lesið, skilið og sætt sig við, sem hreina og skýlausa trygg- ingu gegn þeim áhættum, sem um ræðir. STÓR BRUNATJÓN. Rekstur deildarinnar gekk stór- slysalaust fyrstu árin, raunar allt til ársins 1948, en þá komu þrjú ár í röð með árleg brunatjón, sem fóru verulega fram úr iðgjöldum. Sannaðist þar, að sjaldan er em báran stök. Ógæfan byrjaði með stórbruna í netagerðinni Höfðavik, en það eina tjón kostaði félagið um 2.2 milljónir króna, eða rúm- lega 70% af iðgjöldum deildar- innar það árið. Árið eftir s eig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.