Frjáls verslun - 01.07.1968, Blaðsíða 30
ZB
FRJÁLB VERZLUN
að teknar hafa verið upp ýmsar
nýjar tryggingar á eignum manna,
og eru tryggingar þessar að mestu
reknar af Brunadeildinni, enda í
nánum tengslum við hana. Aí'
þessum tryggingum má nefna
vatnsskaðatryggingar á ýmsu
lausafé svo og húsum, gler-
tryggingar og innbrotatryggingar.
HEIMILISTRYGGINGAR.
Fyrir nokkrum árum voru einnig
teknar upp svokallaðar heimilis-
tryggingar, en þær njóta nú síauk-
inna vinsælda. Gilda þær gegn
fjölmörgum áhættum, sem valdið
geta heimilishaldi fjárútlátum, til
viðbótar hinni gömlu og góðu
brunatryggingu. Trygging þessi
hefur talsvert verið kynnt fyrir
almenningi og þeir eru margir,
sem breytt hafa sinni gömlu
brunatryggingu í heimilistrygg-
ingu, eða tryggt með hinu nýja
skírteini frá byrjun. Iðgjöldin
eru lág, en rekstur á þessum flokki
hefur staðið undir sér með óbreytt-
um iðgjöldum frá 1957, eða frá
byrjun.
Raunar er um nokkrar að-
skildar áhættur að ræða, sem
tryggja má gegn með einu og
sama skírteininu. Tryggingar þess-
ar njóta aukinna vinsælda, þær
eru þríþættar, sem hér segir:
1. Trygging á innbúi.
2. Trygging á ábyrgð fjölskyld-
unnar.
3. Slysatrygging húsmóður og
barna.
Innbústryggingin innifelur bruna-
tryggingu, jafnvíðtæka og áður
hefur tíðkazt, vatnsskaðatrygg-
ingu, sem gildir gegn tjónum af
völdum bilana á vatnskerfi innan-
húss, og ennfremur tryggingu
gegn innbrotsþjófnaði. Trygging-
ar þessar eru bundnar við heim-
ili tryggingartaka, en þó eru
greiddar nokkrar bætur þegar
munir úr innbúinu verða fyrir
tjóni af tryggðum orsökum, ef
þeir eru til bráðabirgða á öðrum
stöðum, t. d. á vinnustað, í við-
gerð eða flutningi, svo eitthvað sé
nefnt. Nýmæli er það, að bætur
ER VEL TRYGGT
fást greiddar, allt að 6% af trygg-
ingarfjárhæðinni, upp í kostnað
og leigu annarsstaðar, þegar hús-
næði hins tryggða hefur skemmzt
það mikið við tjón, að ekki er
hægt að búa í íbúðinni á meðan
á viðgerð stendur.
Ábyrgðartryggingin gildir gegn
þeim tjónum, sem fjölskyldan
kann að verða skaðabótaskyld
fyrir vegna tjóns á mönnum eða
munum, skv. ísl. lögum og réttar-
venjum. Trygging þessi er stund-
um nefnd þriðja manns trygging
og þarfnast raunar ekki annarra
skýringa. Hún bætir ekki tjón,
sem tryggt er gegn í ábyrgðar-
tryggingu bifreiðar, né heldur
tjón vegna fasteignar eða at-
vinnu tryggingartaka.
Slysatrygging á húsmóður og
börnum er ætluð sem hjálp við
meiriháttar slys, þar sem bætur
eru fyrst greiddar þegar varanleg
örorka nemur 5% eða meira. Full-
ar örorkubætur nema krónum
100.000,00 fyrir húsmóður, en kr.
50.000,00 fyrir hvert barn innan
16 ára. Einnig greiðast krónur
10.000,00 sem dánarbætur fyrir
húsmóður vegna bótaskylds slvss.
Eðlilega er erfitt að gefa tæm-
andi lýsingu á öllum atriðum
þessarar tryggingar, en það helzta
hefur nú verið nefnt. Ekki er óeðli-
legt í þessu sambandi að nefna
nokkur atriði, sem margir hafa
spurt um hvort bótaskyld séu, og
má þá nefna, að ekki eru tryggð
nein brot eða álíka skemmdir á
húsmunum tryggingartaka sjálfs,
sem heimilisfólk hefur valdið.
Ekki eru bætt nein tjón af vatns-
flóði frá svölum eða öðru utan-
aðkomandi vatni. Ekki heldur
vatnstjón á húsinu sjálfu, nema
það falli undir ábyrgðartrygging-
una. Annars eru vatnstjón á hús-
um (skemmdir og bilanir á leiðsl-
um) tryggjanleg með sérstakri
tryggingu. Ekki greiðast bætur
fyrir húshjálp né dagpeningar af
slysatryggingunni, þar sem bætur
greiðast aðeins í samræmi við ör-
orkumat. En að sjálfsögðu er hægt
að tryggja gegn slysum með víð-
tækari skilmálum en þessum. Að-
altilgangur heimilistryggingar er
því að grípa inn á fleiri svið, þar
sem slys eða óhöpp geta valdið
fjölskyldunni meiriháttar fjár-
hagslegu tjóni, þó þannig að ið-
gjaldið verði ekki óhæfilega hátt
°g tryggingin nái almennri út-
breiðslu.
SÍFELLT FLEIRI SVIÐ
TRYGGINGA.
Um það má deila, hvort nú-
verandi þróun sé heppileg, og
ekki verður sagt um hvað fram-
tíðin ber í skauti sér í þeim efn-
um. Fólki þykir af því léttir. á
fjárhagslegum umbrotatímum, að
geta sótt bætur til vátryggingafé-
lags, hvort heldur það er fyrir
brotna gluggarúðu eða blautt
gólfteppi. Sannarlega geta slik
óhöpp komið illa við fjárhaginn.
En höfuðmarkmið trygginga
stendur þó óbreytt, að vernda
menn gegn áföllum vegna tjóna.
Hið gamla, góða brunatrvgg-
ingarskírteini er einmitt gott
dæmi um slíka tryggingarvernd.
Þrátt fyrir breytta tíma og nýja
hætti forðar það mönnum enn fiá
fjárhagslegum áföllum.
„SJÓVÁ” TRYGGT
SJÓVÁTRYGGINGARFÉLAG fSLANDS H-F