Frjáls verslun - 01.07.1968, Side 22
20
FRJALS VERZLUN
Starfsfólk Sjóvátryggingarfélags íslands að Ingólfsstræti 5.
Eftir að þessi starfsemi var orð-
in kunn erlendis leitaði Lloyd’s í
London til félagsins og óskaði að
það tæki við tjónaumboði þess
hér á landi, frá 1. janúar 1968.
í samráði við Lloyd’s og eftir
nánari athugun þótti eðlilegra að
slík starfsemi yrði rekin af sér-
stöku félagi, þótt að öðru leyti
væri hún rekin af sömu starfs-
mönnum Sjóvátryggingarfélags-
ins. Varð því að ráði, að stofnað
var hlutafélagið Könnun (Survey
Ltd.), sem tók til starfa frá ára-
mótum 1967. Stofnendur voru
stj órnarmeðlimir Sj óvátryggingar-
félagsins, svo og þeir Stefán G.
Björnsson, Axel J. Kaaber og
Agnar Guðmundsson, en hann er
skoðunarmaður félagsins. Hluta-
fé er kr. 250.0000.—. Frarn-
kvæmdastjórar eru þeir Stefán C-.
Björnsson og Axel J. Kaaber, en
honum var fyrst um sinn falið að
annast daglegan rekstur þessa fé-
lags ásamt skoðunarmanni. Fjöldi
erlendra tryggingafélaga hefur
síðan leitað til Könnunar h.f. og
falið henni að annast tjónaskoð-
anir fyrir sig. Stjórn Könnunar
h.f. skipa þeir Sveinn Benedikts-
son, Ágúst Fjeldsted og Björn
Hallgrímsson.
Eins og fram kemur í yfirliti
þessu, sézt best hve Sjóvátrygg-
ingarfélagið stendur föstum fót-
um, enda er það afar nauðsyn-
legt fyrir þá, er láta mikil verð-
mæti í áhættu hjá tryggingafé-
lagi, að ekki sé minnsti vafi um.
traustleika þess, og því aðeins er
hægt að auka eigin áhættur félag-
anna sjálfra og þá jafnframt með
gagnkvæmri endurtryggingu inn-
anlands og minnka þannig endur-
tryggingar erlendis, að varasjóðir
þeirra séu nægir þegar óvænt eða
óeðlileg óhöpp steðja að.
„SJÓVÁ” TRYGGT ER VEL TRYGGT
sjóvAtryggingarfelag ÍSLANDS H-F