Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1968, Page 27

Frjáls verslun - 01.07.1968, Page 27
FRJÁL5 VERZLUN 25 til vill farmur skipsins, fyrir svip- aða eða jafnvel hærri upphæð heldur en skipið sjálft er tryggt fyrir. Á fyrstu árum félagsins voru allar endurtryggingar Sjódeildar teknar í Danmörku. Smátt og smátt varð þó tilhneigingin rík- ari, að leita á endurtryggingar- markaðinn í Bretlandi, hjá Lloyd’s í London. Árið 1927 voru gerðir endurtryggingarsamningar í Bret- landi og voru þeir Sjódeildinni til mikils hagræðis. Fyrir sjódeild tryggingafélags er áríðandi að hafa greiðan og góðan aðgang að fjölbreyttum endurtryggingamark- aði. vegna þess að sjótryggingar hafa oft fleiri afbrigði heldur en flestar aðrar tryggingategundir. Þeir tryggingaskilmálar, sem tryggt var eftir á meðan endur- trygging var yfirleitt í Danmörku, voru mun þrengri en brezkir skil- málar, en endurtryggingamarkað- urinn í London átti einnig miklu auðveldara með að útvega af- brigðilegar endurtryggingar. Þetta varð til þess, að Sjódeildin flutti töluvert af endurtryggingum sín- um yfir til Bretlands og hafði því alla möguleika á öruggari og fullnægjandi endurtryggingu þeg- ar stríðið skall á 1939. Þetta varð einnig til þess, að endurtrygging'a- möguleikar Sjódeildarinnar rofn- uðu ekki né röskuðust á nokkurn hátt, þegar Danmörk var hernum- in í stríðinu. Starfsemi félagsins gat haldið áfram án nokkurrar tafar eða vandræða. Ýmis önnur viðskipti eru endur- tryggð í Danmörku, en yfirgnæf- andi meirihluti af viðskiptum Sjódeildar er ennþá endurtryggð- ur á markaðnum í London. End- urtryggingaviðskipti eru alþjóðleg, en enn þann dag í dag er endur- tryggingamarkaðurinn í Bretlandi einhver sá stærsti og öruggasti, sem til er i heiminum. BYGGINGATRYGGINGAR. Einmitt vegna þeirra möguleika, sem Sjódeildin skapaði sér til end- urtryggingar, gat hún tekið að sér ýmsar aðrar tryggingar, sem ekki falla beint undir venjulega sjó- tryggingasamninga. Má t. d. nefna, að Sjódeildin hefur útvegað endur- tryggingarmöguleika á ýmsum öðrum tryggingum, t. d. bygginga- tryggingum. Trygging gegn tjóni því. sern kann að verða á húsi eða ein- hverju verki, meðan það er i smíðum, er orðin allalgeng, enda eru verðmæti, sem í húfi eru, mjög veruleg. Má til gamans geta þess, að undir byggingatryggingu get- ur fallið verk eins og hafnargerð, vegagerð eða jarðgangagerð ekk- ert síður en trygging á smíði stórhýsis eða verksmiðju. í vax- andi mæli krefst eigandi verksins, að verktakinn hafi viðeigandi tryggingu, til þess að öruggt sé að tjón, sem kann að verða á bygg- ingunni eða verkinu, verði ekki að alvarlegum fjárhagslegum bagga. Sjódeildin hefur útvegað töluvert af slíkum tryggingum og hafa allmörg stór verk verið tryggð hjá deildinni. Að sjálfsögðu hefur gengið á ýmsu hjá Sjódeild Sjóvátrygg- ingarfélagsins þau 50 ár, sem hún hefur starfað. Tjón hafa oft orðið mikil og alvarleg, en skyn- samleg stefna í endurtrygginga- málum hefur forðað félaginu sjálfu frá mjög verulegum skakka- föllum. Kreppuárin 1929/1936 voru mjög erfið, einnig stríðsárin 1939—1945. en árin eftir stríð hafa flest verið uppgangsár, þar til nú. Sjóvátryggingarfélag- ið er ekki eitt um hituna leng- ur, í stríðslok voru 3-—4 vátrygg- ingafélög, sem kepptu um við- skipti landsmanna, nú í dag eru þau yfir 15. Samkeppnin er afar hörð og oft erfitt að ákveða hvern- ig bjóða skuli í tryggingar, hvort taka eigi að sér áhættu fyrir ið- gjald, sem jafnvel kannski er fyr- ir neðan það, sem skynsamlegt er. Þegar á allt er litið, eru starfs- menn Sjódeildarinnar þess full- vissir, að yfirstíga má alla erfið- leika og þeir líta björtum augum á framtíð félagsins í heild. Þeir hafa þá löngun og þann vilja, sem með þarf til þess að bera hróður félagsins áfram um ókomna fram- tíð.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.