Frjáls verslun - 01.07.1968, Síða 32
3D
FRJALS VERZLUNi
réttar og ábyrgðartrygginga eru
kunnar í öllum löndum, þar sem
ábyrgðartrygging hefur náð veru-
legri fótfestu. Þess vegna tóku
brezkir dómstólar upp þá reglu,
að reynt var að leyna því, að varn-
araðili væri ábyrgðartryggður,
þegar kviðdómur átti að fjalla um
skaðabótamál. Talið var hætt við,
að kviðdómendur litu ekki hlut-
lægt á málavexti, ef þeir vissu að
,,ríkt“ vátryggingafélag myndi
greiða bæturnar fyrir varnarað-
ila. ef hann tapaði málinu.
3. Flokkun ábyrgðartrygginga.
Ábyrgðartryggingar eru til í
ýmsum myndum. Á fslandi eru
þessar helztar:
Ábyrgðartrygging bifreiða (og
annarra skráningarskyldra öku-
tækja) skv. umferðarlögum
nr. 40/1968.
Ábyrgðartrygging flugvéla
skv. lögum um loftferðir nr.
34/1964.
Vátrygging á skipum tekur að
verulegu leyti til skaðabóta,
sem vátryggður er gerður á-
byrgur fyrir vegna áreksturs
skipa o. fl.
Heimilistrygging felur m. a. 1
sér ábyrgðartryggingu fyrir
vátryggingartaka, maka hans
og ógift börn undir 21 árs
aldri.
Almenn ábyrgðartrygging.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu, eru fjórar fyrstu vá-
tryggingategundirnar bundnar við
ákveðin, tiltölulega þröng at-
hafnasvið. Ábyrgðartryggingar,
sem hér eru til umræðu, eru
hins vegar ætlaðar fyrir marg-
vísleg athafnasvið. Segja má,
að unnt sér að fá keypta
ábyrgðartryggingu fyrir flest all-
ar atvinnugreinar, sem stundaðar
eru hér á landi. Þess vegna á vel
við að nefna þessa vátrygginga-
grein almenna ábyrgðartryggingu.
Menn geta einnig fengið ábyrgð-
artryggingu gegn áhættu í einka-
lífi, bæði svonefnda einstaklings-
ábyrgðartryggingu og ábyrgðar-
tryggingu húseiganda. Einstakl-
ingsábyrgðartryggingin er lítið
útbreidd, m. a. vegna þess að slík
vátrygging er jafnan innifalin
í venjulegri heimilistryggingu.
Flestir þeir, sem taka almenna
ábyrgðartryggingu, eru því at-
vinnurekendur, sem vátryggja sig
gegn skaðabótakröfum, er á þá
kunna að falla í sambandi við at-
vinnureksturinn sem slíkan. Þess
vegna mun hér einkum verða rætt
um ábyrgðartryggingu atvinnu-
rekenda.
4. Frjálsar og lögboðnar
ábyrgðartryggingar.
Hér er sá kostur vaiinn, að nota
heitið almenn ábyrgðartrygging,
en ekki frjáls ábyrgðartrygging.
Þegar almennar ábyrgðartrygg-
ingar hófust hérlendis að nokkru
marki, voru ábyrgðartryggingar
bifreiða (skyldutryggingar) orðn-
ar svo rótgrónar, að hin nýja vá-
tryggingagrein var kölluð frjáls
ábyrgðartrygging, til aðgreining-
ar frá hinum lögboðnu ábyrgðar-
tryggingum. Heitið almenn á-
byrgðartrygging sýnist eiga betur
við en frjáls ábyrgðartrygging,
enda er mönnum frjálst að kaupa
ýmsar aðrar tegundir ábyrgðar-
trygginga en þá, sem hér um
ræðir.
5. Hvað er ábyrgðartrygging?
Abyrgðartrygging tryggir vá-
tryggðan gegn þeim fjárútlátum,
sem hann verður fyrir, þegar
skaðabótakrafa vegna tjóns á
mönnum eða munum er gerð á
hendur honum, á því sviði sem
getið er í vátryggingarskírteininu.
6. Hvað bætir ábyrgðartrygging?
Með ábyrgðartryggingu tekur
vátryggingafélagið á sig þá á-
hættu, sem vátryggður hefur af
því að eiga skaðabótakröfur yfir
höfði sér. Greiðsluskylda félags-
ins er háð því, að vátryggður verði
fyrir fjártjóni vegna bótakröfu frá
þriðja aðila.
Margir spyrja um, hve háar
bætur ábyrgðartrygging greiði.
Við þeirri spurningu er ekki unnt
að gefa eitt svar. Ábyrgðartrygg-
ing greiðir þær bætur, sem hinum
vátryggða er skylt að borga eftir
íslenzkum skaðabótareglum. Verði.
tjón á munum, fer fjárhæð bóta
eftir því, hve víðtækar skemmd-
irnar eru. Sé hins vegar um slys
að ræða, bætir ábyrgðartrygging-
in fyrst og fremst atvinnutap (ef
því er að skipta), svo og örorku-
bætur, bætur fyrir þjáningar og
lýti (ef slysið hefur það alvarlegar
afleiðingar), ýmsan beinan kostn-
að, sem tjónþoli hefur haft af slys-
inu, kostnað við lögfræðiaðstoð,
(en hennar er oft þörf) og vexti af
bótafjárhæðinni frá slysdegi.
7. Vátrygging gegn „þriðja
manni“.
Almenn ábyrgðartrygging trygg-
ir vátryggðan bæði gegn kröfum
frá starfsmönnum hans og öðrum
aðilum, þó að undanteknu nánasta
venzlafólki vátryggðs.
8. Slys á vátryggðum og
skemmdir á eignum hans.
Verði vátryggður sjálfur fyrir
slysi eða skemmist eignir hans,
bætir ábyrgðartrygging ekki.
Ábyrgðartrygging er ekki slysa-
trygging. Ábyrgðartrygging trygg-
ir ekki heldur nein ákveðin, á-
þreifanleg verðmæti. Hinir vá-
tryggðu hagsmunir eru eignir
hans að frádregnum skuldum.
9. Skaðabótakröfur.
Ábyrgðartrygging tekur aðeins
til tjóns af völdum skaðabóta-
kröfu. Ef vátryggður er sóttur til
refsiábyrgðar, greiðir vátrygging-
in ekki kostnað, sem af því leiðir,
svo sem sektir og málskostnað.
10. Kröfur skv. lagareglum.
Ábyrgðartrygging greiðir ein-
ungis kröfur, sem byggjast á bóta-
skyldu skv. réttarreglum. Kröfur,
er vátryggður telur sig bera sið-
ferðilega skyldu til að greiða, án